Gamla ljósmyndin: Bikarúrslit

Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson

Íþrótta­deild Morg­un­blaðsins og mbl.is held­ur áfram að gramsa í mynda­safni Morg­un­blaðsins og birta á mbl.is á laug­ar­dög­um. 

Bikarúrslitaleikirnir í handknattleik fara fram í Laugardalshöllinni í dag þegar Valur og Stjarnan mætast í kvennaflokki en Valur og ÍBV í karlaflokki. 

Meðfylgjandi mynd er tekin í bikarúrslitaleik karla árið 1992 þegar gömlu handboltastórveldin FH og Valur áttust við. Hafði FH betur 25:20 en FH-liðið var illviðráðanlegt eftir að það endurheimti Kristján Arason úr atvinnumennsku. Var Kristján spilandi þjálfari eftir heimkomuna frá Spáni.

Kristján er einmitt á myndinni og reynir að stöðva Valsarann Geir Sveinsson sem nær skoti á markið. Myndina tók Sverrir Vilhelmsson sem myndaði fyrir Morgunblaðið í áratugi. 

Geir Sveinsson og Kristján Arason eru í hópi farsælustu landsliðsmanna Íslands í íþróttinni eins og handboltaáhugamenn þekkja. Báðir þeim kostum prýddir að vera framúrskarandi í bæði vörn og sókn. Ferli þeirra verða ekki gerð tæmandi skil í grein sem þessari en hér er stiklað á stóru. 

Geir lék með landsliðinu frá 1984 til 1999. Lék hann alls 340 A-landsleiki og skoraði 502 mörk. Er hann sá þriðji leikjahæsti frá upphafi. Geir var í lykilhlutverki þegar Ísland lék um verðlaun á Ólympíuleikunum í Barcelona og var fyrirliði þegar Ísland náði sínum besta árangri á HM sem er 5. sæti í Japan 1997. Geir var valinn í úrvalslið mótsins eftir HM 1995.

Hann lék með Val, spænsku liðunum Granollers og Avidesa, Montpellier í Frakklandi og Wuppertal í Þýskalandi. Geir hefur þjálfað íslenska karlalandsliðið, Val, Gróttu, Akureyri, Bregenz í Austurríki og Magdeburg og Nordhorn í Þýskalandi. 

Geir hlaut sæmdarheitið Íþróttamaður ársins hjá Samtökum íþróttafréttamanna árið 1997. 

Kristján var á meðal bestu leikmanna heims á níunda áratugnum og hafnaði í 4. sæti í slíku kjöri hjá IHF árið 1989. Hann er fyrsti Íslendingurinn sem valinn var í heimsliðið í íþróttinni. Kristján var lykilmaður í landsliðinu þegar Ísland hafnaði í 6. sæti á Ólympíuleikunum í Los Angeles 1984 og HM í Sviss 1986 þar sem hann varð fimmti markahæsti leikmaður mótsins þótt hann missti af síðasta leiknum. Kristján varð fyrstur til að skora þúsund mörk fyrir A-landsliðið en alls skoraði hann 1.123 mörk í 245 leikjum.

Kristján lék með FH hér heima og með þýsku liðunum Hameln og Gummersbach og Teka Santander á Spáni. Kristján hefur þjálfað FH en einnig Dormagen og Wallau/Massenheim í Þýskalandi. 

Kristján var níu ár í röð á meðal tíu efstu í kjörinu á Íþróttamanni ársins hjá Samtökum íþróttafréttamanna og hafnaði tvívegis í 2. sæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert