Jakob vann fyrsta fjórgang tímabilsins

Jakob Svavar Sigurðsson og Hálfmáni frá Steinsholti unnu fyrsta fjórgang …
Jakob Svavar Sigurðsson og Hálfmáni frá Steinsholti unnu fyrsta fjórgang tímabilsins.

Það var þétt setið á pöllunum í TM-höllinni í Víðidal í Reykjavík í kvöld en um 800 manns voru mættir þangað á fyrstu keppni Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum og keppt var í fjórgangi.

Spennan var mikil enda margir búnir að bíða eftir því að keppnistímabilið hæfist. Jakob Svavar Sigurðsson var fyrstur eftir forkeppni og sigldi sigrinum í höfn í úrslitunum með jafnri og góðri sýningu. Matthías Leó Matthíasson endaði í öðru sæti eftir að hafa komið í 6-7. sæti inn í úrslitin. Í þriðja sæti varð Elin Holst á Frama frá Ketilsstöðum með 7,37 í einkunn. 

Liðaplattanum deildu liðin Eques/Kingsland og Hjarðartún en þau voru jöfn að stigum með 46 stig en í þriðja sæti var lið Hestvits/Árbakka. Næsta keppni fer fram fimmtudaginn 13. febrúar en þá verður keppt í slaktaumatölti í TM-höllinni hjá Fáki.

Niðurstöður keppninnar

A úrslit - Fjórgangur:

Sæti - Knapi - Hestur - Lið - Aðaleinkunn

1 Jakob Svavar Sigurðsson og Hálfmáni frá Steinsholti Hjarðartún 7.63

2 Matthías Leó Matthíasson og Taktur frá Vakurstöðum Eques/Kingsland 7.4

3 Elin Holst og Frami frá Ketilsstöðum Gangmyllan 7.37

4 Hulda Gústafsdóttir og Sesar frá Lönguskák Hestvit/Árbakki 7.27

5 Árni Björn Pálsson og Hátíð frá Hemlu II Top Reiter 7.17

6 Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi Hestvit/Árbakki 7.1

7 Hanna Rún Ingibergsdóttir og Grímur frá Skógarási Eques/Kingsland 6.87

Verðlaunahafarnir á fyrsta mótinu.
Verðlaunahafarnir á fyrsta mótinu.


Forkeppni - Fjórgangur

Sæti - Knapi - Hestur - Lið - Aðaleinkunn

1 Jakob Svavar Sigurðsson og Hálfmáni frá Steinsholti Hjarðartún 7.33

2 Hulda Gústafsdóttir og Sesar frá Lönguskák Hestvit/Árbakki 7.17

3 Árni Björn Pálsson og Hátíð frá Hemlu II Top Reiter 7.17

4 Hanna Rún Ingibergsdóttir og Grímur frá Skógarási Eques/Kingsland 7.07

5 Elin Holst og Frami frá Ketilsstöðum Gangmyllan 7

6 Matthías Leó Matthíasson og Taktur frá Vakurstöðum Eques/Kingsland 6.97

7 Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi Hestvit/Árbakki 6.97

8 Glódís Rún Sigurðardóttir og Glymjandi frá Íbishóli Ganghestar/Austurás 6.93

9 Ragnhildur Haraldsdóttir og Vákur frá Vatnsenda Ganghestar/Austurás 6.93

10 Helga Una Björnsdóttir og Hnokki frá Eylandi Hjarðartún 6.9

11 Flosi Ólafsson og Frami frá Ferjukoti Hrímnir/Export hestar 6.9

12 Eyrún Ýr Pálsdóttir og Askur frá Gillastöðum Top Reiter 6.87

13 Ásmundur Ernir Snorrason og Dökkvi frá Strandarhöfði Auðsholtshjáleiga/Horse export/Strandarhöfuð 6.8

14 Arnar Bjarki Sigurðsson og Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum Hrímnir/Export hestar 6.73

15 Sigurður Sigurðarson og Rauðka frá Ketilsstöðum Gangmyllan 6.7

16 Siguroddur Pétursson og Steggur frá Hrísdal Hrímnir/Export hestar 6.67

17 Þórarinn Ragnarsson og Leikur frá Vesturkoti Hjarðartún 6.63

18 Bergur Jónsson og Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum Gangmyllan 6.63

19 Guðmundur Friðrik Björgvinsson og Jökull frá Rauðalæk Eques/Kingsland 6.6

20 Sylvía Sigurbjörnsdóttir og Kolbakur frá Morastöðum Auðsholtshjáleiga/Horse export/Strandarhöfuð 6.6

21 Telma Lucinda Tómasson og Baron frá Bala 1 Ganghestar/Austurás 6.6

22 Þórdís Erla Gunnarsdóttir og Sproti frá Enni Auðsholtshjáleiga/Horse export/Strandarhöfuð 6.47

23 Teitur Árnason og Arthúr frá Baldurshaga Top Reiter 6.23

24 Gústaf Ásgeir Hinriksson og Kría frá Kópavogi Hestvit/Árbakki 5.93

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert