Neymar í stand í tæka tíð?

Ökkli Neymars var ansi bólginn eftir leikinn gegn Serbíu.
Ökkli Neymars var ansi bólginn eftir leikinn gegn Serbíu. AFP/Guiseppe Cacace

„Við teljum okkur hafa tíma til að koma Neymar í stand í tæka tíð,“ sagði Rodrigo Lasmar, læknir brasilíska liðsins, sem mætir Suður-Kóreu í 16-liða úrslitum heimsmeistaramóts karla í fótbolta í Katar á mánudag.

Neymar varð fyrir ökklameiðslum í opnunarleik Brasilíu í G-riðli gegn Serbíu í nóvember.

„Það er möguleiki á að Neymar verði klár.“

Rodrigo Lasmar
Rodrigo Lasmar AFP/Thiago Ribeiro
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert