Björn og Kristófer spila með KR í vetur

Alls skrifuðu tíu leikmenn undir samninga við KR. Í aftari …
Alls skrifuðu tíu leikmenn undir samninga við KR. Í aftari röð eru frá vinstri Eygló Kristín Óskarsdóttir, Kristófer Acox, Brynjar Þór Björnsson, Darri Hilmarsson og Björn Kristjánsson. Í fremri röð eru Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir, Margrét Blöndal, Marín Matthildur Jónsdóttir, Þóra Birna Ingvarsdóttir og Perla Jóhannsdóttir. Ljósmynd/Heimasíða KR

Körfuknattleiksmaðurinn Björn Kristjánsson er genginn í raðir KR frá Njarðvík eftir ársdvöl á Suðurnesjunum. Björn lék með KR í tvö ár áður en hann gekk í raðir Njarðvíkur og kann hann greinilega vel við sig í Vesturbænum. 

Björn skoraði 13,1 stig, tók 4,7 fráköst og gaf 3,7 stoðsendingar að meðaltali í leik með Njarðvík á síðasta tímabili og var hann á meðal bestu leikmanna liðsins.

Darri Hilmarsson og Kristófer Acox gerðu einnig nýja samninga við KR og munu þeir leika með liðinu á næstu leiktíð. Sex leikmenn kvennaliðs KR í körfubolta sömdu einnig um áframhaldandi veru hjá félaginu. Þær eru Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir, Perla Jóhannsdóttir, Margrét Blöndal, Marín Matthildur Jónsdóttir, Þóra Birna Ingvarsdóttir og Eygló Kristín Óskarsdóttir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert