Fjölnir nælir í serbneskan leikmann

Fjölnismenn fá liðsstyrk.
Fjölnismenn fá liðsstyrk. Ljósmynd/karfan.is

Körfuboltadeild Fjölnis hefur samið við Srdjan Stojanovic, 197 sentímetra framherja frá Serbíu, og mun hann leika með liðinu á komandi leiktíð. 

Fjölnir leikur í 1. deildinni í vetur og fyrsti leikur liðsins er á heimavelli á móti Þór Akureyri 5. október, en Þór féll úr efstu deild síðasta vetur. 

Fjölnir hafnaði í sjöunda sæti í 1. deild síðasta vetur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert