Króati á Krókinn

Israel Martin, þjálfari Tindastóls.
Israel Martin, þjálfari Tindastóls. mbl.is/Hari

Bikarmeistarar karla í körfuknattleik hafa bætt við sig króatískum bakverði Dino Butorac að nafni og mun hann leika með Tindastóli í Dominos-deildinni næsta vetur.

Butorac er 28 ára gamall og 193 cm á hæð. Hann býr að ágætri reynslu í Evrópu og hefur leikið í Þýskalandi og Svíþjóð fyrir utan heimalandið. Feykir.is greinir frá þessu. 

Tindastóll hefur bætt við sig Danero Thomas sem kom frá ÍR, Brynjari Þór Björnssyni sem kom frá KR og Urald King sem kom frá Val. Liðið missti hins vegar Sigtrygg Arnar Björnsson til Grindavíkur og Björgvin Hafþór Ríkharðsson til Skallagríms. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert