Körfuknattleikskappinn Tryggvi Snær Hlinason skoraði átta stig og átti níu fráköst í stórtapi, 78:52, hjá Obradorio á Tenerife í spænsku ACB-deildinni í körfuknattleik í kvöld en hann spilaði í um 23 mínútur fyrir liðið.
Dagur Kár Jónsson skoraði tíu stig fyrir austurríska úrvalsdeildarfélagsins Raiffeisen Flyers Wels í naumum sigri á liði Vienna í kvöld. Dagur spilaði í um hálftíma og átt auk stiganna tíu, sex fráköst og fimm stoðsendingar en hann gekk til liðs við austurríska félagið í sumar frá Grindavík.
Þá var landsliðskonan Hildur Björg Kjartansdóttir drjúg í liði Celta Zorka sem vann afgerandi 73:59-sigur á Cortegada í spænsku B-deildinni. Hildur skoraði 18 stig og átti tíu fráköst en hún spilað í um hálftíma.
Þá töpuðu Helena Sverrisdóttir og stöllur í Cegledi illa fyrir NKK, 85:61, í ungversku deildinni en Helena skoraði 15 stig, átti fimm fráköst og gaf eina stoðsendingu.