Samherji Dags kýldur í leik

Dagur Kár Jónsson.
Dagur Kár Jónsson. mbl.is/Ómar Óskarsson

Samherji Dags Kárs Jónssonar hjá Wels Flyers í austurrísku úrvalsdeildinni í körfuknattleik var kýldur hnefahöggi í leik liðsins gegn Kapfenberg. 

Atvikið var ljótt eins og sjá má í myndskeiði sem birt er á netmiðlinum Karfan.is en samherji Dags, Erwin Zulic, fékk heilahristing. 

Kapfenberg er núverandi meistari og hefur félagið rekið leikmanninn sem um ræðir: David Samuels. 

Myndskeið af atvikinu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert