KKÍ fær 37 milljónir

Andri Stefánsson, sviðsstjóri afreks- og ólympíusviðs ÍSÍ, Lilja Sigurðardóttir, formaður …
Andri Stefánsson, sviðsstjóri afreks- og ólympíusviðs ÍSÍ, Lilja Sigurðardóttir, formaður stjórnar afrekssjóðs ÍSÍ, Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, og Kristinn Geir Pálsson, afreksstjóri KKÍ, við undirritun samningsins. Ljósmynd/Heimasíða KKÍ

Körfuknattleikssamband Íslands hefur fengið úthlutað 37 milljónum úr Afrekssjóði ÍSÍ, en sjóðurinn tók upp nýtt fyrirkomulag á árinu hvað styrkveitingar varðar. Þetta kemur fram á heimasíðu KKÍ.

KKÍ flokkast sem A-sérsamband samkvæmt flokkun Afrekssjóðs ÍSÍ fyrir árið 2018. Heildarstyrkveiting sjóðsins til KKÍ vegna verkefna ársins er 37.000.000 kr. og er hækkun á styrkupphæð frá síðasta ári þar sem verkefni KKÍ hlutu styrk að upphæð 31.500.000 kr.

A-landslið karla tók á árinu áfram þátt í undankeppni HM 2019 og í forkeppni EuroBasket 2021 og A-landslið kvenna tók þátt í undankeppni EuroBasket 2019. KKÍ sendi auk þess átta yngri landslið til keppni í sumar, en þessi lið voru að taka þátt í Evrópukeppnum á vegum FIBA, Norðurlandamótum og/eða öðrum alþjóðlegum mótum. Auk þessa hefur KKÍ haldið úti afreksbúðum og úrvalsbúðum fyrir skilgreinda árganga, unnið að því að efla fagteymisvinnu og mælingar fyrir landsliðin og reynt þannig að efla enn frekar faglega vinnu í kringum afreksstarf sambandsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert