Stephen Curry, ein skærasta stjarna NBA-deildarinnar í körfuknattleik, hefur ekki getað leikið með meistaraliðinu Golden State Warriors í undanförnum leikjum.
Curry er á sjúkralistanum og glímir við meiðsli í nára. Bakvörðurinn meiddist í leik gegn Milwaukee Bucks síðasta fimmtudag.
Meiðslin eru hins vegar ekki talin alvarlegs eðlis en þar sem stutt er liðið á tímabilið hafa forráðamenn Golden State ekki í hyggju að taka neina áhættu. Búist er við því að Curry verði tilbúinn í slaginn innan skamms.
Curry byrjaði tímabilið með látum og skoraði tæplega 30 stig að meðaltali í fyrstu tólf leikjunum.