Jakob Örn á leiðinni í úrslit

Jakob Örn Sigurðarson.
Jakob Örn Sigurðarson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Jakob Örn Sigurðarson og samherjar hans í Borås tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaeinvígi um sænska meistaratitilinn í körfubolta. Borås vann þá 90:82-útisigur á Norrköping og með því einvígið 4:2. 

Íslenski landsliðsmaðurinn hafði nokkuð hægt um sig og skoraði fjögur stig og tók þrjú fráköst á 22 mínútum. Marcus Tyus var stigahæstur hjá Borås með 22 stig. 

Borås, sem hafnaði í öðru sæti í deildarkeppninni, mætir annaðhvort deildarmeisturunum í Södertälje eða Jämtland, sem hafnaði í fimmta sæti, í úrslitaviðureigninni.

Þau mætast á heimavelli Jämtland í kvöld, en staðan í einvíginu þar er 3:2, Södertälje í vil.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert