Ein send heim og önnur ráðin í staðinn

Danni Williams er nýr leikmaður Breiðabliks.
Danni Williams er nýr leikmaður Breiðabliks.

Breiðablik hefur skipt um bandarískan leikmann hjá kvennaliði sínu í körfuknattleik því samningi hefur verið sagt upp við Violet Morrow og í staðinn hefur Danni Williams verið fengin til félagsins.

Williams kemur frá Texas þar sem hún lék með háskólaliði Texas A&M, sem er eitt af þeim sterkustu í bandaríska háskólaboltanum, eins og fram kemur á Facebook-síðu körfuknattleiksdeildar Breiðabliks. Hún lék síðast í Púertóríkó og varð meistari með liði sínu þar.

Williams mun spila sinn fyrsta leik með Breiðabliki á morgun þegar liðið mætir Snæfelli í Smáranum. Kópavogsliðið hefur tapað sex af fyrstu sjö leikjum sínum í úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildinni, það sem af er þessu tímabili og er næstneðst í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert