Góður liðsauki á leiðinni í Garðabæinn

Gunnar Ólafsson á landsliðsæfingu.
Gunnar Ólafsson á landsliðsæfingu. mbl.is/Hari

Körfuknattleikslið Stjörnunnar fær góðan liðsauka í dag en félagið hefur boðað til fréttamannafundar nú síðdegis.

Samkvæmt heimildum mbl.is kynna Garðbæingar þar til leiks Gunnar Ólafsson sem lék með Keflavík á síðasta tímabili en síðan með Oviedo í spænsku B-deildinni frá hausti og þar til í lok nóvember þegar hann var leystur undan samningi þar.

Gunnar er 26 ára gamall bakvörður, uppalinn hjá Fjölni og lék þar til 2013 en síðan eitt tímabil með Keflavík áður en hann fór í háskóla í Bandaríkjunum þar sem hann spilaði til 2018. Hann hefur verið í A-landsliðshópi Íslands að undanförnu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert