NBA-deildin í körfuknattleik tilkynnti fyrir stundu að ákveðið hefði verið að fresta viðureign Los Angeles liðanna Lakers og Clippers sem fram átti að fara í Staples Center annað kvöld, þriðjudagskvöld.
„Ákvörðunin var tekin af virðingu við Lakers sem er í djúpri sorg vegna hins hörmulega andláts goðsagnar Lakers, Kobe Bryants, dóttur hans Giönnu og hinna sjö sem fórust með þeim í þyrluslysinu á sunnudaginn,“ segir í yfirlýsingu sem NBA-deildin sendi frá sér.