Öll úrslitakeppnin í Vegas?

Los Angeles Lakers er í toppsæti Vesturdeildarinnar.
Los Angeles Lakers er í toppsæti Vesturdeildarinnar. AFP

Forráðamenn NBA-deildarinnar í körfubolta í Bandaríkjunum íhuga að láta spila alla úrslitakeppni deildarinnar í Las Vegas fyrir luktum dyrum. Þetta segir heimildarmaður Sports Illustrated. 

Sumardeild NBA hefur farið fram í Vegas síðan 2004 og er samband deildarinnar og ríkisvalda í Nevada gott. Eina leiðtin til að úrslitakeppnin geti farið fram fyrr frekar en síðar er að spila hana í heilu lagi á sama staðnum. 

Sports Illustrated greinir frá því að Las Vegas sé eina borgin sem forráðamenn deildarinnar eru að líta til. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert