Stigahæstur gegn gömlu félögunum

Martin Hermannsson skoraði 13 stig í kvöld.
Martin Hermannsson skoraði 13 stig í kvöld. Ljósmynd/@YarisahaBasket

Martin Hermannsson átti mjög góðan leik fyrir Valencia gegn sínum gömlu félögum í Alba Berlín í Evrópudeildinni í körfuknattleik á Spáni í kvöld.

Martin, sem var stigahæstur í liði Valencia ásamt Klemen Prepelic, skoraði 13 stig og gaf sex stoðsendingar en leiknum lauk með 100:92-sigri Alba Berlín.

Jafnfræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Alba Berlín leiddi með einu stigi í hálfleik, 51:50. 

Alba Berlín skoraði 32 stig gegn 15 stigum Valencia í þriðja leikhluta og þar með var björninn unninn.

Valencia er með sjö sigra í fjórða sæti Evrópudeildarinnar en þetta var fjórða tap liðsins í keppninni á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert