Búið að vera brekka

Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkur virtist vera létt þegar hann mætti í viðtal eftir langþráðan sigur á ÍR í kvöld í Dominosdeild karla í körfubolta í kvöld. 

Einar sagði sína menn hafa verið að æfa mjög svo duglega fyrir leikinn í vikunni og ætlað svo sannarlega að sýna sínu fólki að þeir eru betri en það sem þeir hafa verið að sýna undanfarið. Einar bætti við að liðið væri að læra inn á það álag sem deildin bjóði uppá þessi misseri. 

Viðtalið sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert