Góður fyrri hálfleikur dugði ekki til

Martin Hermansson í leik með Valencia.
Martin Hermansson í leik með Valencia. Ljósmynd/@YarisahaBasket

Martin Hermannsson og félagar í spænska stórliðinu Valencia máttu þola annað tap sitt í efstu deild á tímabilinu er þeir lutu í lægra haldi gegn Murcia, 91:86, í þriðju umferðinni.

Heimamenn voru sterkir í fyrri hálfleik og með 44:31-forystu í hléinu en gestirnir sneru taflinu alveg við í þriðja og fjórða leikhluta. Martin skoraði 11 stig fyrir heimamenn á þeim 22 mínútum sem hann spilaði.

Valencia er sem fyrr segir búið að tapa tveimur af þremur fyrstu leikjum tímabilsins. Gegn Baskonia í fyrstu umferðinni og Murcia í dag en þar á milli vannst 89:69-sigur á Manresa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert