Skemmtileg áskorun að mæta þeim

Sara Rún Hinriksdóttir sækir að körfu Rúmena í leiknum í …
Sara Rún Hinriksdóttir sækir að körfu Rúmena í leiknum í Búkarest. Ljósmynd/FIBA

„Það var gríðarlega svekkjandi að tapa þessum leik gegn Rúmeníu en á sama tíma var margt jákvætt í okkar leik líka,“ sagði Sara Rún Hinriksdóttir, leikmaður íslenska kvennalandsliðsins í körfuknattleik, í samtali við Morgunblaðið.

Íslenska liðið þurfti að sætta sig við 59:65-tap gegn Rúmenum í C-riðli undankeppni EM 2023 í Búkarest á fimmtudaginn. Margir leikmenn íslenska liðsins voru að stíga sín fyrstu skref með landsliðinu en Sara Rún var afar öflug í leiknum, skoraði 17 stig og tók ellefu fráköst.

Ísland mætir Ungverjalandi á Ásvöllum í Hafnarfirði annað kvöld en Ungverjaland tapaði með fjögurra stiga mun gegn Spáni í Szekszard í Ungverjalandi á fimmtudaginn.

„Leikurinn við Ungverjaland verður mun erfiðari. Við hittum ungverska liðið á Keflavíkurflugvelli og þær eru bæði stórar og stæðilegar þannig að ég á von á hörkuleik á móti þeim. Á sama tíma verður það skemmtileg áskorun að mæta þeim,“ sagði Sara.

Viðtalið í heild er í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert