Fyrsta æfing Martins í átta mánuði

Martin Hermannsson í leik með Valencia.
Martin Hermannsson í leik með Valencia. Ljósmynd/@YarisahaBasket

Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfuknattleik og leikmaður Valencia á Spáni, tók í dag þátt í sinni fyrstu æfingu með spænska liðinu í átta mánuði eftir að hafa slitið krossband í maí á síðasta ári.

Fyrsta liðsæfingin í 8 mánuði. Körfubolti ég saknaði þín!“ skrifaði Martin einfaldlega á Twitteraðgangi sínum í kvöld.

Hann meiddist undir lok maímánaðar í fyrra í leik með Valencia gegn Baskonia í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar um spænska meistaratitilinn og gekkst svo undir aðgerð rúmri viku síðar.

Aðgerðin gekk vel og hefur Martin unnið hörðum höndum að því undanfarnar vikur að styrkja sig svo hann gæti tekið þátt í liðsæfingum að nýju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert