Klár í slaginn: MMA þáttur tvö

Mbl.is sýnir nú annan þáttinn af „Klár í slaginn“ sem Reykjavík MMA gefur út, en tilefnið er það að Aron Kevinsson og Ívar Orri Ómarsson keppa í kvöld í Carlisle á Englandi.

Þeir berj­ast báðir fyr­ir Reykja­vík MMA en fé­lagið var stofnað á þessu ári og hafa nú þegar 27 kepp­end­ur bar­ist er­lend­is fyr­ir fé­lagið í MMA-íþrótt­inni. Þetta er fyrsti bar­dagi Ívars en þetta verður fjórði bar­dagi Arons á ár­inu. Magnús Ingi Ingvars­son, þjálf­ari þeirra, fór einnig með þeim út.

Í öðrum þætti sem sjá má í meðfylgjandi myndskeiði er sagt frá ferðalagi þeirra út og aðdragandann að bardögum þeirra um helgina. Sýnt verður frá þeim í beinni á Facebook-síðu Reykjavík MMA sem sjá má HÉR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert