Bretar og Indverjar sigruðu í badminton

Sigurvegarinn í einliðaleik kvenna, Saili Rane.
Sigurvegarinn í einliðaleik kvenna, Saili Rane. Sportmyndir.is

Kristó­fer Darri Finns­son og Mar­grét Jó­hanns­dótt­ir náðu bestum árangri ís­lensku þátt­tak­endanna á Ice­land In­ternati­onal, badm­int­on­keppni WOW Reykja­vik In­ternati­onal Games, um helg­ina. Þau komust alla leið í undanúr­slit í tvenndarleik en töpuðu þar gegn mjög sterku dönsku pari sem fyr­ir fram var talið lík­leg­ast til að sigra á mót­inu vegna stöðu sinn­ar á heimslist­an­um.

Danir, Skotar og Indverjar áttu alla keppendur í úrslitunum sem leikin voru í TBR-húsinu í dag. 

Í einliðaleik karla sigraði Englendingurinn Sam Parson. Hann sigraði Bodhit Joshi frá Indlandi 21-14 og 21-17. 

Tvenndarleikinn unnu Rohan Kapoor og Kuhoo Garg frá Indlandi þau Kristoffer Knudsen og Isabella Nielsen 16-21, 21-19 og 21-18.

Í einliðaleik kvenna mættust þær Saili Rane og Vaishnavi Reddy Jakka, báðar frá Indlandi. Rane sigraði 22-20 og 21-12. 

Í tvíliðaleik kvenna sigruðu þær Julie Macpherson og Eleanor O'Donnell frá Skotlandi þær Emilie Furbo og Trine Villadsen frá Danmörku 17-21, 21-13 og 21-17. 

Mótinu lauk með tvíliðaleik karla þar sem Alexander Dunn og Adam Hall frá Skotlandi sigruðu Nicklas Mathiasen og Mikkel Stoffersen frá Danmörku 21-16 og 21-18. 

Nánari úrslit og lengd leikja má finna hér

Sigurvegarinn í einliðaleik karla, Sam Parson.
Sigurvegarinn í einliðaleik karla, Sam Parson. Sportmyndir.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert