Irma hársbreidd frá sínu besta

Irma Gunnarsdóttir stökk 6,34 metra í langstökki í dag.
Irma Gunnarsdóttir stökk 6,34 metra í langstökki í dag. mbl.is/Óttar Geirsson

Irma Gunnarsdóttir úr FH reyndist hlutskörpust í langstökki kvenna innanhúss á frjálsíþróttamóti Reykjavíkurleikanna í frjálsíþróttahöllinni í Laugardalshöll í dag.

Irma var hársbreidd frá sínum besta árangri þegar hún stökk lengst 6,34 metra.

Á stórmóti ÍR í síðasta mánuði stökk hún 6,36 metra, sem er næstbesti árangur íslenskrar konu í greininni í sögunni.

Í öðru sæti var Íslandsmethafinn Hafdís Sigurðardóttir, sem stökk lengst 6,17 metra. Íslandsmet hennar frá árinu 2016 er 6,54 metrar.

Hafdís Sigurðardóttir í loftinu í dag.
Hafdís Sigurðardóttir í loftinu í dag. mbl.is/Óttar Geirsson

Birna Kristín Kristjánsdóttir hafnaði í þriðja sæti með því að stökkva lengst 6,04 metra.

Karla megin var Bretinn James Lelliott sterkastur þegar hann stökk lengst 7,45 metra, 

Í öðru sæti var annar Breti, Alexander Farquharson, sem stökk lengst 7,38 metra, sem er hans besti árangur á ferlinum.

Þar á eftir kom Daníel Ingi Egilsson úr FH, sem stökk lengst 7,22 metra. Besti árangur hans er 7,35 metrar.

Irma stekkur í dag.
Irma stekkur í dag. mbl.is/Óttar Geirsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert