Framtíðin enn óljós

Úr verslun Toys ´R´ Us.
Úr verslun Toys ´R´ Us. mbl.is/Brynjar Gauti

Framtíð þriggja verslana leikfangakeðjunnar Toys'R'Us er óviss en verslanirnar eru opnar í dag. Sigurður Þorgeir Jónasson, verslunarstjóri á Smáratorgi, segist ekkert vita hvað gerist eftir það.

Top-Toy, danskt móður­fé­lag leik­fanga­keðjunn­ar Toys ‘R’ Us á Íslandi sem og ann­ars staðar á Norður­lönd­un­um, var úrskurðað gjaldþrota milli jóla og nýárs. 

Samkvæmt Sigurði hafa engin skilaboð enn borist að utan og þangað til það gerist muni starfsfólk í verslununum halda sínu striki. 

Aðspurður segir Sigurður að viðskiptavinir séu enn hvattir til að nýta gjafabréf í verslunum „meðan það er hægt“. Minnt er á venjulegar skilareglur þrátt fyrir mögulegar lokanir.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK