Bróðirinn tekur við forstjórastóli Kauphallarinnar

Magnús Harðarson, nýr forstjóri Kauphallarinnar.
Magnús Harðarson, nýr forstjóri Kauphallarinnar. Ljósmynd/Aðsend

Magnús Harðarson hefur verið skipaður nýr forstjóri Kauphallarinnar Nasdaq Iceland og mun hann þegar hefja störf. Tekur Magnús við af bróður sínum, Páli Harðarsyni sem hefur verið forstjóri síðan 2011. Tók Páll nýlega við sem fjármálastjóri evrópskra markaða hjá Nasdaq.

Magnús hefur starfað hjá Nasdaq síðan 2002 (þá Kauphöll Íslands), fyrst sem forstöðumaður viðskiptasviðs og síðar sem forstöðumaður sölu og þjónustu. Hann hefur að auki verið staðgengill forstjóra Nasdaq Iceland frá árinu 2011.

Magnús er fæddur árið 1966. Áður en hann hóf störf hjá Nasdaq Iceland, þá Kauphöll Íslands, var hann hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun í þrjú ár og þar áður starfaði hann sem efnahagslegur ráðgjafi. Hann hefur Ph.D. gráðu í hagfræði frá Yale University.

Haft er eftir Arminta Saladziene, aðstoðarforstjóra og yfirmanni hjá Nasdaq, að Magnús hafi mikla reynslu af fjármálamörkuðum sem gagnist við uppbyggingu verðbréfamarkaðar á Íslandi. „Magnús hefur gríðarlega mikla þekkingu á efnahagslegu umhverfi og reynslu  á fjármálamarkaði  sem er nauðsynlegt veganesti fram veginn, en hann hefur gegnt stóru hlutverki í uppbyggingu verðbréfamarkaðar á Íslandi. Við erum viss um að þekking hans og hugmyndir um áframhaldandi vöxt markaðarins eigi eftir að verða verðbréfamarkaði og atvinnulífi til góðs og hlökkum til að vinna með honum áfram í nýju starfi,“ er haft eftir Saladziene.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK