1,24 milljarða tekjutap vegna ljósboga í kerskála

Tekjutap Landsvirkjunar vegna ljósbogans sem kom upp í kerskála Rio …
Tekjutap Landsvirkjunar vegna ljósbogans sem kom upp í kerskála Rio Tinto og orsakaði að slökkt var á kerskálanum nemur 1,24 milljörðum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tekjutap Landsvirkjunar á fyrstu níu mánuðum ársins, í kjölfar þess að Rio Tinto í Straumsvík þurfti að loka þriðja kerskála sínum í júlí og fram á haust, nam 10 milljónum Bandaríkjadala, eða 1,24 milljörðum íslenskra króna. Þetta kemur fram í ársfjórðungsuppgjöri Landsvirkjunar og segir þar að það sjái þess merki í rekstrarniðurstöðum fjórðungsins.

Ljósbogi myndaðist í kerskálanum 21. júlí, en þar eru 160 ker. Af öryggisástæðum var slökkt á skálanum, en endurræsing á fyrstu kerjunum hófst í lok ágústmánaðar.

Um þriðjungur framleiðslu Rio Tinto á Íslandi fer fram í skálanum, en í ársuppgjöri félagsins kom fram að framleiðslan í Straumsvík myndi dragast saman um 21 þúsund tonn í ár vegna atviksins. Til sam­an­b­urðar var fram­leiðslu­get­an áætluð 213 þúsund tonn í ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK