Verk og vit haldin í fimmta sinn í mars

Sýningin Verk og vit verður haldin í fimmta sinn dagana …
Sýningin Verk og vit verður haldin í fimmta sinn dagana 24.-27. mars. Ljósmynd/Aðsend

Stórsýningin Verk og vit verður haldin í fimmta sinn dagana 24.-27. mars í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal. Rúmlega hundrað sýnendur munu þar kynna starfsemi sína, nýjungar, vörur og þjónustu.

„Sýningin Verk og vit hefur sannað sig sem mikilvægur vettvangur fyrir aðila í bygginga- og mannvirkjageiranum til að hittast, styrkja viðskiptasambönd og afla nýrra, kynna vörur og þjónustu og nýjungar, ásamt því að ræða málin, sem meðal annars skýrir þessa góðu þátttöku,“ er haft eftir Áslaugu Pálsdóttur framkvæmdastjóra sýningarinnar í tilkynningu.

„Nú er góður tími fyrir fyrirtæki að sækja fram, þétta raðirnar og setjast niður með núverandi og nýjum viðskiptavinum og eiga samtal um verkefnin sem framundan eru. Til þess er sýningin Verk og vit frábær vettvangur.“

Miðasala hafin

Sýningin er ætluð fagaðilum á sviði byggingariðnaðar, skipulagsmála og mannvirkjagerðar. Meðal sýnenda eru byggingaverktakar, verkfræðistofur, skólar, fjármálafyrirtæki, ráðgjafa- og hugbúnaðarfyrirtæki, sveitarfélög og tækjaleigur svo eitthvað sé nefnt.

Þá gefst almenningi og nemendum kostur á að kynna sér atvinnugreinarnar. Miðasala fyrir fagaðila og aðra gesti er þegar hafin á verkogvit.is og tix.is.

Framkvæmdaraðili sýningarinnar er AP almannatengsl en samstarfsaðilar eru háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, Reykjavíkurborg, Samtök iðnaðarins, BYKO og Landsbankinn.

Sýningin verður opin fagaðilum á fimmtudag og föstudag og er almenningur velkominn á laugardag og sunnudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK