Stýrivextir of háir að mati SI

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Að mati Samtaka iðnaðarins eru stýrivextir Seðlabankans of háir og aðhaldsstig peningastefnunnar of mikið um þessar mundir en tilkynnt verður um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans á miðvikudaginn í næstu viku. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef samtakanna. 

Þar segir að verðbólgan hafi hjaðnað nokkuð undanfarið, verðbólguvæntingar lækkað og raunstýrivextir, sem er mælikvarði á aðhald peningastefnunnar, hækkað. Á sama tíma hafi dregið úr hagvexti og hagvaxtarhorfur hafa versnað, ekki síst eftir að jarðhræringarnar á Reykjanesskaga hófust.

„Að mati SI þarf að gæta að því að baráttan við verðbólguna, sem svo sannarlega er mikilvæg, verði með þeim hætti að efnahagslegum og félagslegum kostnaði verði haldið í lágmarki. Hægt hefur umtalsvert á hagvexti og sjást merki þess víða, m.a. á tölum um neyslu og fjárfestingu. Ljóst er að hátt vaxtastig Seðlabankans er farið að hafa mikil áhrif á heimilin og fyrirtækin í landinu og viðbúið að þau áhrif verði enn meiri og sýnilegri á næstunni,“ segir í tilkynningunni.

Segjast ekki vera ein um þá skoðun

Þá benda Samtök iðnaðarins á könnun á væntingum markaðsaðila en niðurstöður þeirrar könnunar voru birtar fyrr í vikunni. Þar kom fram að um 27 prósent svarenda telja að aðhald peningastefnunnar sé of þétt og stýrivextir bankans of háir en það hlutfall var 15 prósent fyrir ári og 0 prósent fyrir tveim árum benda Samtökin á. Í niðurstöðum könnunarinnar kemur einnig fram að flestir eða um 60 prósent svarenda töldu að taumhaldið væri hæfilegt um þessar mundir en hlutfallið jókst úr 44 prósent í ágústkönnuninni. Þeim sem töldu taumhaldið of laust fækkaði í 13 prósent úr 30 prósentum.

Jafnframt kemur fram í tilkynningunni frá Samtökunum að áhrif hækkana stýrivaxta undanfarin misseri séu að koma fram og munu halda áfram að gera það enda taki það vaxtabreytingar tíma til að hafa áhrif.

Boltinn hjá stjórnvöldum og vinnumarkaðnum

„Verðbólgan hefur farið úr 10,2% niður í 7,9%  síðan í febrúar á þessu ári. Reiknað er með því að dragi talsvert meira úr verðbólgu á næstunni. Samhliða þessu hafa verðbólguvæntingar lækkað. SI telja mikilvægt að aðrir aðilar sem koma að hagstjórninni leggi sitt af mörkum við að ná niður verðbólgunni. Í því sambandi er boltinn nú hjá stjórnvöldum og aðilum vinnumarkaðarins,“ segir enn fremur í tilkynningunni.

Þá segja Samtökin mikilvægt að kjarasamningar renni stoðum undir stöðugleika og verðbólgu í takti við markmið Seðlabankans. Boltinn sé einnig hjá ríkisstjórninni þar sem mikilvægt sé að hún beiti aðhaldi og nýti ríkisfjármálin til að styrkja framboðshlið hagkerfisins og efli framleiðni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK