Árlegum loðnuleiðangri Hafrannsóknastofnunar er lokið þetta haustið, en bergmálsmælingar voru gerðar á stærð loðnustofnsins dagana 5.-28. september. Samantekt á niðurstöðum leiðangursins er ekki lokið en þó þykir ljóst að ekki verði hægt að mæla með upphafsaflamarki fyrir komandi vertíð.
Eftir loðnuleiðangur síðasta hausts, til samanburðar, lagði Hafró til að leyft yrði að veiða 208 þúsund tonn af loðnu á vertíðinni 2017/2018.
Á vef stofnunarinnar segir að leiðangurinn hafi verið gerður út á rannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni ásamt norska uppsjávarskipinu Eros, sem Hafrannsóknastofnun Grænlands leigði til verkefnisins.
Var þetta í fyrsta sinn sem Grænlendingar taka þátt í leiðangrinum að haustlagi, en allt frá árinu 1984 hafa Íslendingar einir sinnt vöktun loðnustofnsins.
Segir á síðunni að rannsóknasvæðið hafi náð yfir landgrunnið við Austur-Grænland allt frá um 75°N og suðvestur með landgrunnskantinum allt suður að syðsta odda Grænlands, Hvarfi. Auk þess náði rannsóknasvæðið til Grænlandssunds, Íslandshafs, hafsvæðisins vestan við Jan Mayen auk norðurmiða.
„Veður hafði allnokkur áhrif á yfirferð skipanna, en að mestu leyti náðist að mæla við góðar aðstæður og hafís hamlaði ekki mælingum. Þannig náðist því að miklu leyti að fara yfir það svæði sem fyrirhugað var að skoða.“
Endanlegar niðurstöður um niðurstöður leiðangursins munu líklega liggja fyrir í lok þessarar viku eða snemma í þeirri næstu og mun Hafrannsóknastofnun þá kynna þær með hefðbundnum hætti.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.4.24 | 393,93 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.4.24 | 307,20 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.4.24 | 202,84 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.4.24 | 78,20 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.4.24 | 110,49 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.4.24 | 133,49 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.4.24 | 156,12 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
26.4.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet | |
---|---|
Þorskur | 326 kg |
Ýsa | 66 kg |
Skarkoli | 47 kg |
Samtals | 439 kg |
26.4.24 Oddverji SI 76 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.934 kg |
Þorskur | 146 kg |
Ýsa | 42 kg |
Skarkoli | 30 kg |
Ufsi | 20 kg |
Steinbítur | 5 kg |
Rauðmagi | 1 kg |
Samtals | 2.178 kg |
26.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.040 kg |
Þorskur | 49 kg |
Skarkoli | 11 kg |
Steinbítur | 5 kg |
Ýsa | 3 kg |
Samtals | 2.108 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.4.24 | 393,93 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.4.24 | 307,20 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.4.24 | 202,84 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.4.24 | 78,20 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.4.24 | 110,49 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.4.24 | 133,49 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.4.24 | 156,12 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
26.4.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet | |
---|---|
Þorskur | 326 kg |
Ýsa | 66 kg |
Skarkoli | 47 kg |
Samtals | 439 kg |
26.4.24 Oddverji SI 76 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.934 kg |
Þorskur | 146 kg |
Ýsa | 42 kg |
Skarkoli | 30 kg |
Ufsi | 20 kg |
Steinbítur | 5 kg |
Rauðmagi | 1 kg |
Samtals | 2.178 kg |
26.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.040 kg |
Þorskur | 49 kg |
Skarkoli | 11 kg |
Steinbítur | 5 kg |
Ýsa | 3 kg |
Samtals | 2.108 kg |