„Megn pólitísk myglulykt“

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar.

„Fyrir mér blasir við að þarna lágu skýrir og greinilegir þræðir þvers og kruss á milli Seðlabankans, ríkisstjórnarinnar og Kastljóss RÚV. Megna pólitíska myglulykt lagði af þessu samráðsferli þá og leggur enn.“

Þetta skrifar Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, á vef útgerðarinnar. Fjallar hann þar um rannsókn Seðlabankans á viðskiptaháttum bæði Vinnslustöðvarinnar og Samherja, sem hann segir að nokkru leyti samstofna.

„Slík framkoma og stjórnsýsla hefði ábyggilega þótt til fyrirmyndar í …
„Slík framkoma og stjórnsýsla hefði ábyggilega þótt til fyrirmyndar í Austur-Þýskalandi sáluga,“ skrifar Sigurgeir Brynjar. mbl.is/Ómar Óskarsson

Atburðarásin ekki verið tilviljunum háð

Bendir hann á að athygli hafi vakið hve vel Ríkisútvarpið hafi verið upplýst um það fyrir fram, að „rannsóknarlið úr Seðlabankanum undirbyggi innrás í Samherja“, til að safna gögnum.

„Kvikmyndatökumenn RÚV settu sig þannig í stellingar að morgni dags á gangstétt fyrir utan aðsetur fyrirtækisins á Akureyri og í Reykjavík, tilbúnir með tæki sín og tól áður en rannsóknarmenn bar þar að með pappakassa undir gögn,“ skrifar Sigurgeir Brynjar.

„Vert er að halda til haga dagsetningum og velta fyrir sér hvort atburðarásin þarna sé tilviljunum háð? Ég held ekki, alls ekki.“

Hér að neðan má sjá þær dagsetningar sem Sigurgeir Brynjar nefnir í færslu sinni, orðrétt eins og hann setur þær fram.

  • 26. mars 2012: Steingrímur J. lagði fram á Alþingi frumvörp Jóhönnustjórnarinnar um stjórn fiskveiða og veiðigjöld.
  • 27. mars 2012: Húsleit Seðlabankans hjá Samherja á fyrir norðan og sunnan.
  • 27. mars 2012: Þrælundirbúinn Kastljósþáttur um meinta undirverðlagningu Samherja (augljóslega farið að undirbúa þáttaseríuna löngu fyrir húsleitina).
  • 28. mars 2012: Framhalds-Kastljós um sama mál.
  • 29. mars 2012: Kastljós III um sama mál, Þorsteinn Már Baldvinsson í „yfirheyrslu“. Í inngangi var sagt m.a.: „Allur útflutningur Samherja er til rannsóknar“!
  • 2. apríl 2012: Vinnslustöðin tekin fyrir í seríu Kastljóss um verðlagningarmál. Forráðamönnum Hugins í Eyjum gerðar upp skoðanir.

Í samtali við Morgunblaðið í dag segist hann ekki í vafa um að skipulagða atlögu að sjávarútveginum hafi verið að ræða og greinilegir þræðir hafi verið á milli Seðlabankans, ríkisstjórnarinnar og Kastljóss RÚV.

„Klukkutíma áður en síðastnefndi þátturinn var sendur út náði ég tali af einum stjórnenda Kastljóss og útskýrði málið fyrir honum, en við okkur hafði ekki verið talað. Ég taldi að ég hefði skýrt með greinilegum hætti að af okkar hálfu hefðu engin lögbrot verið framin og ekkert sviksamlegt verið á ferðinni. Ég fékk þau svör að unnið hefði verið að þættinum í sex vikur og of seint væri að breyta efni þáttarins.“

Starfsmenn sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja á …
Starfsmenn sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja á Akureyri. Lagt var hald á mikið magn gagna í húsleitinni. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Hefði ábyggilega þótt til fyrirmyndar í A-Þýskalandi

Ítarlega er fjallað um málið á síðu 10 í Morgunblaðinu í dag, en þar er helst greint frá því að hvorki Sigurgeir Brynjar né aðrir fulltrúar meirihlutaeigenda útgerðarinnar hafi vitað af kæru Seðlabankans í þeirra garð fyrr en í mars 2014, þremur árum eftir að hún var lögð fram.

„Slík framkoma og stjórnsýsla hefði ábyggilega þótt til fyrirmyndar í Austur-Þýskalandi sáluga en ég hefði aldrei getað ímyndað mér að svona nokkuð gerðist í réttarríki á borð við það sem ég taldi mig búa við á Íslandi á 21. öldinni,“ skrifar hann á vef VSV.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.3.24 559,44 kr/kg
Þorskur, slægður 18.3.24 503,99 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.3.24 331,72 kr/kg
Ýsa, slægð 18.3.24 216,50 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.3.24 220,69 kr/kg
Ufsi, slægður 18.3.24 222,80 kr/kg
Gullkarfi 18.3.24 233,55 kr/kg
Litli karfi 18.3.24 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 18.3.24 194,27 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 10.868 kg
Ýsa 818 kg
Langa 137 kg
Keila 127 kg
Steinbítur 87 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 12.041 kg
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 3.803 kg
Ýsa 146 kg
Steinbítur 54 kg
Samtals 4.003 kg
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 2.198 kg
Þorskur 772 kg
Skarkoli 197 kg
Samtals 3.167 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.3.24 559,44 kr/kg
Þorskur, slægður 18.3.24 503,99 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.3.24 331,72 kr/kg
Ýsa, slægð 18.3.24 216,50 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.3.24 220,69 kr/kg
Ufsi, slægður 18.3.24 222,80 kr/kg
Gullkarfi 18.3.24 233,55 kr/kg
Litli karfi 18.3.24 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 18.3.24 194,27 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 10.868 kg
Ýsa 818 kg
Langa 137 kg
Keila 127 kg
Steinbítur 87 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 12.041 kg
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 3.803 kg
Ýsa 146 kg
Steinbítur 54 kg
Samtals 4.003 kg
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 2.198 kg
Þorskur 772 kg
Skarkoli 197 kg
Samtals 3.167 kg

Skoða allar landanir »