Umsókn Hvals enn í vinnslu

Hvalveiðiskipin Hvalur 8 og Hvalur 9 í Reykjavíkurhöfn.
Hvalveiðiskipin Hvalur 8 og Hvalur 9 í Reykjavíkurhöfn. mbl.is/Júlíus

Umsókn Hvals hf. um leyfi til veiða á langreyðum í ár er enn í vinnslu hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Þetta kemur fram í svari ráðuneytisins við fyrirspurn mbl.is.

200 mílur greindu frá því í gær að fyrirtækið hefði enn ekki fengið nýtt leyfi til langreyðaveiða, þrátt fyr­ir að hafa sótt um slíkt leyfi 14. mars. 

Segir þar enn fremur að ráðuneytið hafi kallað eftir umsögn Fiskistofu og nú síðast umsögn Hafrannsóknastofnunar, í gær. 

150 manns við veiðar og verkun í fyrra

Alls voru 145 langreyðar veidd­ar við landið á síðasta ári, en eng­ar hafa verið veidd­ar í ár. Um 150 manns unnu við veiðar og verk­un hjá Hval í Hval­f­irði og Hafnar­f­irði á vertíðinni í fyrra, sem stóð í sam­tals 98 daga frá 19. júní.

Ljóst má því telja að vertíðin væri haf­in í ár, ef tekið er mið af síðasta ári, væri Hval­ur búinn að fá já­kvætt svar við um­sókn sinni. Í svari ráðuneytisins segir að Hvalur hafi ekki lagt fram kvörtun vegna þessa.

Veiðar á 209 langreyðum leyfðar

Fyrirkomulag hvalveiða er með þeim hætti að þær eru frjálsar þeim sem fengið hafa leyfi uns tiltekinn heildarfjöldi dýra hefur verið veiddur, samkvæmt reglugerð sem Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra gaf út 19. febrúar. Í viðauka hennar segir einnig að leyfilegur heildarafli á langreyði og hrefnu skuli nema þeim fjölda dýra sem kveðið sé á um í veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.

Ráðgjöf stofnunarinnar fyrir yfirstandandi ár hljóðar upp á veiðar á samtals 209 langreyðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »