Makrílvertíð hafin í Neskaupstað

Beitir NK kom til hafnar með 860 tonn og hófst …
Beitir NK kom til hafnar með 860 tonn og hófst vinnsla úr honum í morgun. mbl.is/Þorgeir

Makrílvinnsla hófst í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað á laugardag þegar Margrét EA kom þangað með fyrsta farm vertíðarinnar, 840 tonn.

Þetta kemur fram í frétt á vef Síldarvinnslunnar, en þar segir að eins og venjulega hafi verið að ýmsu að hyggja þegar vinnsla hófst, enda vélbúnaður fiskiðjuversins flókinn.

Þegar vinnslu úr Margréti lauk var Beitir kominn til hafnar með 860 tonn og hófst vinnsla úr honum í morgun, um það leyti sem Börkur kom til hafnar með 600 tonn.

„Það gekk býsna vel að ná aflanum. Við fengum hann í sex stuttum holum, en það er aldrei togað lengur en í þrjá og hálfan til fjóra tíma. Við hófum veiðar við Háfadýpið en enduðum austan við Skaftárdýpi og það er örugglega makríll enn austar. Það bendir allt til þess að töluverður makríll sé á ferðinni en eins og venjulega er veiðiárangur misjafn. Hann blossar upp á tilteknu svæði en svo getur hann horfið þar býsna snögglega. Mér líst bara vel á þessa makrílvertíð, allavega fer hún ágætlega af stað,“ segir Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti.

Auk makrílskipanna sem landa afla sínum í fiskiðjuverið hófst löndun á frystum makríl úr Hákoni EA í Neskaupstað í morgun. Afli skipsins er 650 tonn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,86 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 114,63 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 64 kg
Steinbítur 7 kg
Samtals 71 kg
26.4.24 Bobby 6 ÍS 366 Sjóstöng
Þorskur 172 kg
Samtals 172 kg
26.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 328 kg
Samtals 328 kg
26.4.24 Bobby 9 ÍS 369 Sjóstöng
Þorskur 67 kg
Samtals 67 kg
26.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 326 kg
Samtals 326 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,86 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 114,63 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 64 kg
Steinbítur 7 kg
Samtals 71 kg
26.4.24 Bobby 6 ÍS 366 Sjóstöng
Þorskur 172 kg
Samtals 172 kg
26.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 328 kg
Samtals 328 kg
26.4.24 Bobby 9 ÍS 369 Sjóstöng
Þorskur 67 kg
Samtals 67 kg
26.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 326 kg
Samtals 326 kg

Skoða allar landanir »