ÚR og tengdir aðilar með 52,76% í Brimi

Útgerðarfélag Reykjavíkur og tengdir aðilar munu fara með 52,76% eignarhlut …
Útgerðarfélag Reykjavíkur og tengdir aðilar munu fara með 52,76% eignarhlut í Brimi. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, er eigandi ÚR. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fyrirvarar vegna kaupa Útgerðarfélags Reykjavíkur á öllu hlutafé FISK-Seafood eignarhaldsfélagi ehf. í Brimi hf. hafa ekki verið uppfylltir. Hins vegar er gert ráð fyrir því að þeir verði uppfylltir 1. desember og mun þá eignarhlutur Útgerðarfélags Reykjavíkur og tengdra aðila í Brimi nema 52,76%, að því er fram kemur í flöggunartilkynningu frá Útgerðarfélagi Reykjavíkur.

Þar er rifjað upp að „á hluthafafundi í Brimi hf. 15. ágúst síðastliðinn var samþykkt að hækka hlutafé félagsins um 133.751.606 hluti sem skyldu afhentir Útgerðarfélagi Reykjavíkur hf. Hlutfjárhækkun þessi hefur nú komið til framkvæmda. Í kjölfarið eykst eignarhlutur Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. og tengdra aðila úr 701.743.876 hlutum í 835.495.482 hluti, sem samsvarar hlutfallslegri aukningu úr 38,51% í 42,71% af heildarhlutafé Brims hf.“

Jafnframt er vísað til flöggunartilkynningar Útgerðarfélags Reykjavíkur frá 8. september 2019, þar sem tilkynnt var um að Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. hefði gert samning um kaup á öllu hlutafé í FISK-Seafood, sem er eigandi 196.500.000 hluta í Brimi. Þegar fyrirvarar kaupanna eru uppfylltir mun eignarhlutur Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. og tengdra aðila aukast í 1.031.995.482 hluti og hlutfall atkvæðisréttar félagsins í Brimi hf. í 52,76%.

Þó er tekið fram að stefnt sé að því að hlutur Útgerðarfélags Reykjavíkur í heildarhlutafé Brims verði til framtíðar undir helmingi hlutafjár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »