Uppbygging hjá Ísfélaginu á Þórshöfn

Smiðirnir Guðjón Gamalíelssson og Kristján Úlfarsson vinna við stækkun hjá …
Smiðirnir Guðjón Gamalíelssson og Kristján Úlfarsson vinna við stækkun hjá Ísfélaginu. mbl.is/Líney Sigurðardóttir

Ísfélag Vestmannaeyja á Þórshöfn stendur í miklum framkvæmdum, en í vor hófst vinna við stækkun fiskvinnsluhúss um 600 fermetra.

„Verið er að stækka rýmið vegna bolfiskvinnslu, setja upp nýja lyftarageymslu, stækka móttökukælinn og koma fyrir betri aðstöðu fyrir aðgerð og grásleppuvinnslu en hluti stækkunar er líka vegna búnaðar fyrir vinnslu uppsjávarfisks. Einnig verður þarna rými fyrir kælivélabúnað vegna fiskvinnslu,“ sagði Siggeir Stefánsson framleiðslustjóri.

Stefnt er að því að taka nýja hlutann í notkun fyrir jól en ekki er pressa á að ljúka þessum framkvæmdum fyrir komandi sumarvertíð.

Ísfélagið hefur í gegnum tíðina staðið í stöðugri uppbyggingu og endurnýjun í starfseminni á Þórshöfn, bæði í fiskimjölsverksmiðju og frystihúsi, og með þessum framkvæmdum bætast 600 fermetrar við fiskvinnsluhúsið. Það er óhætt að segja að þessi þróun síðustu ára hefur verið mjög ánægjuleg fyrir samfélagið og nærumhverfi á Þórshöfn.

Stærri skip kalla á stækkun hafnar

Undanfarin ár hafa orðið miklar framfarir í veiðum og meðhöndlun á uppsjávarfisktegundum með öflugri og stærri skipum sem koma með fiskinn vel kældan og í góðu ástandi í land til vinnslu. Þessu fylgir að víða hefur þurft að fara í framkvæmdir í höfnum svo þessi skip geti landað. Einnig er sú þróun að flutningaskipin hafa verið að stækka, sem jafnframt kallar á stækkun hafna.

Í sumar stendur til að hreinsa og dýpka hluta af höfninni á Þórshöfn og ljóst er að á næstunni er nauðsynlegt að fara í frekari framkvæmdir á dýpkun og auka við viðlegukanta hafnarinnar. Á bryggjuna er komið nýtt vigtarhús og aðstaða fyrir starfsmenn á hafnarsvæði hefur batnað til muna.

Siggeir segir óvíst hvenær sumarvertíðin fari í gang en makrílveiði hefur verið dræm undanfarið. Þegar vertíðin hefst er þörf fyrir aukinn mannskap og fjölgar í bænum, þá eykst þörfin eftir leiguhúsnæði en vöntun er á því á Þórshöfn.

Samfelld bolfiskvinnsla hefur verið hjá Ísfélaginu í allt sumar og skip Ísfélagsins, Dala-Rafn, Ottó og Litlanes, sjá um að koma með afla til vinnslu í bolfiski.

Mjög góð veiði hefur verið á handfærin hjá strandveiðibátum og öðrum en tregt á línu en sjómenn segja töluvert af síld vera í firðinum. Þorskurinn liggur í síldinni og étur sig fullan og tekur þá frekar á króka en línu. Hafa bátasjómenn orðið varir við mikið af síld og einnig eitthvað af loðnu á svæðinu undanfarin ár. Fiskverð er einnig ágætt, frá 470 kr. á kíló upp í 520 kr. fyrir fisk í stærðarflokki 8 plús, svo vel gengur á strandveiðinni. Nokkuð langt er fyrir bátana að sækja, allt upp í 40 mílur, en fæstir strandveiðibátar fara þó svo langt því þeir fara út á miðnætti og þurfa að vera búnir að landa tímanlega áður en fiskurinn fer á uppboð. Um tíu bátar eru á strandveiðum frá Þórshöfn núna.

Mótmæla fyrirkomulagi strandveiða

Mikil óánægja ríkir hjá sjómönnum í smábátafélaginu Fonti á Norðausturlandi með það fyrirkomulag á strandveiðum að hafa einn heildarpott fyrir öll veiðisvæði, en hratt gengur nú á þann pott. Stjórn Fonts sendi í sumar áskorun til ráðherra sjávarútvegsmála um að taka aftur upp svæðaskiptingu á strandveiðiafla og bendir á að fiskgengd byrjar ekki að marki hér á svæðinu fyrr en síðari hluta strandveiða, í júlí og ágúst, en þá er lítið orðið eftir í heildarpottinum þar sem fyrri hluta tímabils hefur verið góð veiði bæði fyrir sunnan og vestan. Áður hefur verið bent á að lítið réttlæti sé fólgið í því að einn heildarpottur sé yfir strandveiðar meðan ekki er öllum tryggður sami dagafjöldi og því mikil mismunun fyrir svæðin þar sem fiskgengd er seinni hluta tímabilsins.

Greinin birtist í Morgublaðinu 23. júlí 2020.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »