Það var ekkert smáræði sem birtist á Faxaflóa í vikunni, en hið gríðarstóra flutningaskip Nordic Oasis sem er um 75 þúsund tonn (Dwt), 225 metra að lengd og ristir fjórtán og hálfan metra kom að suðvesturhorni landsins þegar þurfti að gera við stimpil í vél þess, að því er segir í færslu á vef Landhelgisgæslunnar.
Þar segir að Landhelgisgæslan hafi veitt skipinu heimild til að koma inn í Faxaflóa og leiðbeindi því til akkerislegu undan Kirkjuhól á Snæfellsnesi. „Skipið lagði 700 sjómílna lykkju á leið sína til að komast þangað. Ekki reyndist unnt að taka skipið að bryggju vegna djúpristu þess og miðað við veðurspár var talið hagkvæmast að skipið lægi undan Snæfellsnesi.“
Flogið með þyrlu
Flykkið var vélarvana um tíma á meðan viðgerðir fóru fram en að þeim loknum bað skipstjóri Nordic Oasis um heimild til að fresta brottförum í hálfan annan sólarhring vegna lægðagangs í Norður-Atlantshafi. „Þegar skipið var við akkeri barst Landhelgisgæslunni aftur beiðni frá skipinu, nú vegna skipverja sem slasast hafði á hendi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út síðdegis á mánudag til að sækja manninn. Skipið hafði þá sent Gæslunni heilsufarsyfirlýsingu og vel var hugað að sóttvörnum í sjúkraflutningnum,“ segir í færslunni.
Viðkomu skipsins lauk í dag þegar það létti akkerum og hélt áleiðis í Norðursjó, en það er nú statt suðvestur af Reykjanesi.
Samkvæmt upplýsingum á MarineTraffic er skipið á leið frá Milne Inlet á Baffin-eyju í Kanada til Dunkirk í Frakklandi. Ekki er upplýst hvað skipið er að flytja en vitað er að á Baffin-eyju fer fram umfangsmikil námugröftur tengd járngrýti sem þar er að finna og er höfnin í Milne Inlet tileinkuð þeirri starfsemi.
Milne Inlet höfnin.
Ljósmynd/MarineTraffic