Aukinn kvóti en engar veiðar

Túnfiskveiðar. Japanska skipið Chiyo Maru 18 kemur til Reykjavíkur.
Túnfiskveiðar. Japanska skipið Chiyo Maru 18 kemur til Reykjavíkur. mbl.is

Heimildir íslenskra skipa til veiða á túnfiski hafa aukist síðustu ár, en hins vegar hafa þau ekki stundað þessar veiðar síðan haustið 2016. Jóhanna Gísladóttir GK, skip Vísis hf. í Grindavík, var á túnfiskveiðum í þrjú ár.

Árið 2014 veiddust 122 fiskar eða 22,2 tonn úr sjó, 2015 155 fiskar eða 27 tonn og 2016 veiddust 17 fiskar eða 3,1 tonn. Sjá má á vef Fiskistofu að íslensk skip hafa fengið nokkra túnfiska sem meðafla í ár og landað alls 839 kílóum.

Að sögn Péturs H. Pálssonar, framkvæmdastjóra Vísis, gengu veiðarnar að mörgu leyti ágætlega, en gáfu þó ekki mikið af sér og var því hætt. Fyrirtækið er enn með leyfi til þessara veiða. Pétur segir að kannaðir hafi verið möguleikar á að fá frystiskip hingað til lands til að nýta kvóta Íslendinga undir íslenskum fána, en ekkert hafi orðið af því. Túnfiskurinn er veiddur á línu og eru veiðar heimilaðar frá 1. ágúst til 31. desember.

Þá segir Pétur í Morgunblaðinu í dag, að það hafi hamlað þessum veiðiskap á sínum tíma að þröngur gluggi var til að koma túnfiski úr veiðiskipi, sem ekki var búið frystitækjum, í flug til Japans. Þá hefur verð á túnfiski lækkað á mörkuðum í ár í Japan í kjölfar kórónuveirufaraldursins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 394,31 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,25 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,22 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet
Grásleppa 954 kg
Þorskur 41 kg
Rauðmagi 28 kg
Samtals 1.023 kg
26.4.24 Bergur Sterki HU 17 Grásleppunet
Grásleppa 1.209 kg
Skarkoli 609 kg
Þorskur 275 kg
Steinbítur 51 kg
Hlýri 19 kg
Ýsa 17 kg
Sandkoli 3 kg
Samtals 2.183 kg
26.4.24 Seigur Iii Grásleppunet
Grásleppa 942 kg
Þorskur 233 kg
Skarkoli 66 kg
Steinbítur 15 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 1.264 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 394,31 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,25 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,22 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet
Grásleppa 954 kg
Þorskur 41 kg
Rauðmagi 28 kg
Samtals 1.023 kg
26.4.24 Bergur Sterki HU 17 Grásleppunet
Grásleppa 1.209 kg
Skarkoli 609 kg
Þorskur 275 kg
Steinbítur 51 kg
Hlýri 19 kg
Ýsa 17 kg
Sandkoli 3 kg
Samtals 2.183 kg
26.4.24 Seigur Iii Grásleppunet
Grásleppa 942 kg
Þorskur 233 kg
Skarkoli 66 kg
Steinbítur 15 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 1.264 kg

Skoða allar landanir »