Fóðra lax með timbri í Grindavík

Eldislaxinn í eldisstöð Hafrannsóknastofnunar í Grindavík fær nú fóður sem …
Eldislaxinn í eldisstöð Hafrannsóknastofnunar í Grindavík fær nú fóður sem unnið er úr timbri. Um er að ræða þróunarverkefni til fjögurra ára. Ljósmynd/Móna Lea Ottósdóttir/Hafrannsóknastofnun

Það er ekki hægt að segja annað en að sérlega frumlegt þróunar- og rannsóknaverkefni er nú í fullum gangi við eldisstöð Hafrannsóknastofnunar í Grindavík. Þar er unnið að tilraunaverkefni fyrir Matís, þar sem lax er alinn á fóðri sem upprunnið er úr timbri, að því er fram kemur á vef Hafrannsóknastofnunar.

„Að sjálfsögðu er ekki mikið prótein í timbri sem fiskar gætu melt en verið er að þróa aðferð þar sem aukaafurðum, svo sem sagi úr vinnslu lauftrjáa, er umbreytt í fásykrur sem ákveðin gerð gersveppa getur nýtt sér og myndar úr þeim svokallað einfrumuprótein (e. Single cell protein). Þetta einfrumuprótein hefur hagstæða amínósýrusamsetningu sem jafnast á við fiskimjöl,“ útskýrir Ragnar Jóhannsson, sviðsstjóri fiskeldis og fiskiræktunar hjá Hafrannsóknastofnun.

Verkefnið, sem er til fjögurra ára, er hluti af Evrópuverkefninu Sylfeed og snýst um að búa til prótein úr aukaafurðum frá skógariðnaði. Hafrannsóknastofnun er nú að fóðra töluvert magn af eldislaxi á fóðrinu og eru gerðar mælingar á vexti fisksins og fóðurnýtingu.

Samkeppnin um prótein vaxandi

„Til að ala fisk, og reyndar fleiri dýr svo sem kjúkling og svín, þarf próteinríkt fóður. Stór hluti fóðurs í dag er úr jurtapróteini, gjarnan sojamjöli. Lax getur þó ekki verið jurtaæta eingöngu og verður að fá hluta próteins úr dýraríkinu og þá er notað fiskimjöl. Fiskimjöl er unnið með bræðslu uppsjávarfiska sem er takmörkuð auðlind og uppsjávarfiskar fara í auknu mæli beint til manneldis. Mjölið sem framleitt er í þessu verkefni getur uppfyllt vaxandi þörf fyrir dýraprótein til fiskeldis og annarrar matvælaframleiðslu,“ útskýrir Ragnar og bætir við að samkeppni um prótein í heiminum fari ört vaxandi.

Arbiom bindur miklar vonir við að sag geti nýst sem …
Arbiom bindur miklar vonir við að sag geti nýst sem fóður í dýraraæt, meðal annars fiskeldi. Ljósmynd/Arbiom

Aðferðir sem þessar við fóðurframleiðslu eru taldar stuðla að auknu fæðuöryggi í Evrópu, en þar eru möguleikar að framleiða mjög mikið magn af einfrumupróteini.

Um er að ræða alþjólegt verkefni en auk  Matís taka alls tíu stofnanir og fyrirtæki þátt í samstarfinu, þar á meðal fyrirtækin Arbiom (sem er bæði með rekstur í Bandaríkjunum og í Frakklandi), Norske Skog (Noregi), Golbey (Frakklandi) og Fóðurverksmiðjan Laxá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 28.4.24 441,18 kr/kg
Þorskur, slægður 28.4.24 575,91 kr/kg
Ýsa, óslægð 28.4.24 268,56 kr/kg
Ýsa, slægð 28.4.24 185,76 kr/kg
Ufsi, óslægður 28.4.24 157,15 kr/kg
Ufsi, slægður 28.4.24 185,80 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 28.4.24 175,44 kr/kg
Litli karfi 28.4.24 7,72 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 6.882 kg
Þorskur 284 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 7.213 kg
27.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet
Grásleppa 1.632 kg
Þorskur 72 kg
Rauðmagi 28 kg
Samtals 1.732 kg
27.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 4.115 kg
Þorskur 155 kg
Sandkoli 47 kg
Þykkvalúra 20 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 4.341 kg
27.4.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Skarkoli 1.313 kg
Karfi 492 kg
Þorskur 320 kg
Ýsa 170 kg
Steinbítur 94 kg
Þykkvalúra 14 kg
Grásleppa 9 kg
Hlýri 7 kg
Samtals 2.419 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 28.4.24 441,18 kr/kg
Þorskur, slægður 28.4.24 575,91 kr/kg
Ýsa, óslægð 28.4.24 268,56 kr/kg
Ýsa, slægð 28.4.24 185,76 kr/kg
Ufsi, óslægður 28.4.24 157,15 kr/kg
Ufsi, slægður 28.4.24 185,80 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 28.4.24 175,44 kr/kg
Litli karfi 28.4.24 7,72 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 6.882 kg
Þorskur 284 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 7.213 kg
27.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet
Grásleppa 1.632 kg
Þorskur 72 kg
Rauðmagi 28 kg
Samtals 1.732 kg
27.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 4.115 kg
Þorskur 155 kg
Sandkoli 47 kg
Þykkvalúra 20 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 4.341 kg
27.4.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Skarkoli 1.313 kg
Karfi 492 kg
Þorskur 320 kg
Ýsa 170 kg
Steinbítur 94 kg
Þykkvalúra 14 kg
Grásleppa 9 kg
Hlýri 7 kg
Samtals 2.419 kg

Skoða allar landanir »