Hófu samstarf um virkjun hliðarvinds

María Kristín Þrastardóttir og Óskar Svavarsson stofnendur Sidewind og frá …
María Kristín Þrastardóttir og Óskar Svavarsson stofnendur Sidewind og frá Samskipum Guðmundur Arnar Óskarsson forstöðumaður flutningastjórnunardeildar og Þórunn Inga Ingjaldsdóttir forstöðumaður markaðs- og samskiptadeildar. Ljósmynd/Aðsend

Fyrstu mælingar vegna rannsóknaverkefnis Sidewind eru hafnar um borð í Helgafelli sem gert er út af Samskipum. Markmið íslenska frumkvöðlafyrirtækisins Sidewind, sem vinnur að þróun umhverfisvænna lausna fyrir flutningaskip, er að finna leiðir til að nýta hliðarvind í rafmagnsframleiðslu í vindmyllugámum.

Verkefnið nýtur stuðning Samskipa og segir í fréttatilkynningu frá skipafélaginu að talið er að með aðferðinni megi framleiða 5 til 30 prósent af orkuþörf skipa og þannig draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og tilheyrandi útblæstri.

Þá stefni Sidewind á framleiðslu vindtúrbína sem komið er fyrir í opnum gámum sem nýta hliðarvind sem annars færi til spillis til framleiðslu rafmagns. „Frumgerð vindmyllu Sidewind hefur þegar verið prófuð í vindgöngum í Háskólanum í Reykjavík, vindmælingar eru hafnar um borð í Helgafelli og vinna við smíði frumgerðar í fullri stærð sem verður prófuð um borð er að hefjast,“ segir í tilkynningunni.

Helgafell skip Samskipa
Helgafell skip Samskipa Ljósmynd/Samskip

 Skrifað var undir samning um stuðning Samskipa við verkefnið föstudaginn 9. apríl og segir Óskar Svavarsson, stofnandi  og forstjóri Sidewind: „Okkur finnst frábært að fá svona öflugt fyrirtæki eins og Samskip með okkur í lið. Samstarfið mun efla báða aðila við þróun grænna lausna.“

„Við hlökkum til samstarfsins við Sidewind og finnst þetta verkefni afar spennandi. Samskip eru ávallt með augun opin fyrir tækifærum til að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar og gleður okkur að fá að taka þátt í þróun þessarar nýju tækni,“ segir Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, forstöðumaður markaðs- og samskiptadeildar Samskipa.

Sidewind ehf. er frumkvöðlafyrirtæki með höfuðstöðvar í Reykjavík. Fyrirtækið er í eigu stofnendanna, Maríu Kristínar Þrastardóttur og Óskars Svavarssonar. Sidewind byggir á hugmynd Óskars um framleiðslu rafmagns með láréttum vindtúrbínum í opnum gámum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.4.24 394,28 kr/kg
Þorskur, slægður 30.4.24 432,85 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.4.24 189,34 kr/kg
Ýsa, slægð 30.4.24 117,75 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.4.24 169,98 kr/kg
Ufsi, slægður 30.4.24 175,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 30.4.24 143,59 kr/kg
Litli karfi 28.4.24 7,72 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

30.4.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 4.291 kg
Ýsa 153 kg
Steinbítur 39 kg
Samtals 4.483 kg
30.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 1.943 kg
Ufsi 328 kg
Þykkvalúra 189 kg
Karfi 80 kg
Ýsa 57 kg
Steinbítur 31 kg
Sandkoli 15 kg
Samtals 2.643 kg
30.4.24 Bibbi Jónsson ÍS 65 Grásleppunet
Grásleppa 4.085 kg
Samtals 4.085 kg
30.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 611 kg
Þorskur 308 kg
Samtals 919 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.4.24 394,28 kr/kg
Þorskur, slægður 30.4.24 432,85 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.4.24 189,34 kr/kg
Ýsa, slægð 30.4.24 117,75 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.4.24 169,98 kr/kg
Ufsi, slægður 30.4.24 175,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 30.4.24 143,59 kr/kg
Litli karfi 28.4.24 7,72 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

30.4.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 4.291 kg
Ýsa 153 kg
Steinbítur 39 kg
Samtals 4.483 kg
30.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 1.943 kg
Ufsi 328 kg
Þykkvalúra 189 kg
Karfi 80 kg
Ýsa 57 kg
Steinbítur 31 kg
Sandkoli 15 kg
Samtals 2.643 kg
30.4.24 Bibbi Jónsson ÍS 65 Grásleppunet
Grásleppa 4.085 kg
Samtals 4.085 kg
30.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 611 kg
Þorskur 308 kg
Samtals 919 kg

Skoða allar landanir »