Fimm ára samningur við Fisktækniskólann

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Ólafur Jón Arnbjörnsson, skólameistari …
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Ólafur Jón Arnbjörnsson, skólameistari Fisktækniskólans, við undirritun samningsins. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Fisktækniskóla Íslands í Grindavík hefur verið falið að annast kennslu sjávarútvegsgreina á staðfestum námsbrautum í samræmi við lög um framhaldsskóla. Samningur milli skólans og mennta- og menningarmálaráðuneytisins var undirritaður nýverið og er hann til fimm ára. Á þessum tíma verður framlag ríkisins 71 milljón á ári eða 355 milljónir í heild.

Fram kemur í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins að skólinn hafi starfað frá 2010 og að markmið hans sé að stuðla að menntun fólks í sjávarútvegi og þannig auka fagþekkingu og nýliðun í greininni.

„Um 160 nemendur stunda nám við skólann. Kennslan fer að mestu fram í Grindavík en skólinn er einnig með aðstöðu í Garðabæ, Reykjavík og á Bíldudal. Á fjórða hundrað nemenda hafa lokið námi af skilgreindum brautum skólans, þar af um eitt hundrað frá samstarfsskólum og fræðsluaðilum á Sauðárkróki, Tröllaskaga, Dalvík, Akureyri og Höfn í Hornafirði,“ segir í tilkynningunni.

Sagt var frá áformunum um að ganga til samninga um fisktækninám í vor, en nú hafa þau orðið að veruleika.

„Sjávarútvegurinn er ein af undirstöðuatvinnugreinum okkar Íslendinga og á vettvangi Fisktækniskólans er sannarlega verið að skapa verðmæti til framtíðar. Hér er vel búið að fjölbreyttum nemendahópi og við vonum að skólastarfið dafni vel til framtíðar,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »