Ærir óstöðugan að vísa í Hafrannsóknastofnun

Fjörugt við höfnina þegar strandveiðibátar streyma inn til löndunar á …
Fjörugt við höfnina þegar strandveiðibátar streyma inn til löndunar á Þórshöfn síðasta sumar. Smábátaeigendur á Norðeusturlandi eru ósáttir við skerðingu aflaheimildir ætlaðar strandveiðum. Ljósmynd/Líney Sigurðardóttir

„Fontur harmar ákvörðun sjávarútvegsráðherra að skerða afla til strandveiða á komandi sumri, en treystir því að hún verði endurskoðuð og 48 dagar tryggðir til veiðanna,“ segir í yfirlýsingu Fonts  félagi smábátaeigenda á Norðausturlandi. Ráðherra hefur gefið út að það verði ekki gert á yfirstandandi fiskveiðiári.

Mikil óánægja er meðal þeirra sem stunda strandveiðar með ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að skerða aflaheimildir sem ætlað er strandveiðum um 1.500 tonn milli ára. Hefur ráðherra sagst knúin til þess svo hægt yrði að hlífa öðrum þáttum atvinnu- og byggðakvóta í ljósi þeirra skerðinga sem urðu í veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.

„Ég stóð frammi fyrir því að ekki var hægt að lækka ráðstöfun í rækju- og skelbætur ásamt sérstökum byggðakvóta þar sem þeim hafði verið úthlutað á skip í upphaf yfirstandandi fisk-veiðiárs. Loks var það mat sérfræðinga ráðuneytisins að lækkun á línuívilnun og frístundaveiði myndi skila óverulegum árangri í þessu samhengi. Þá stóðu eftir tveir pottar, strandveiðar og almennur byggðakvóti og ljóst að lækka þyrfti ráðstöfun til þeirra þátta,“ sagði Svandís í svari við fyrirspurn 200 mílna vegna málsins.

„Ákvörðun ráðherra sýnir að knýjandi er að breyta fyrirkomulagi á ráðstöfun aflaheimilda úr 5,3% pottinum.  Strandveiðar eiga ekki að vera háðar viðskiptum uppsjávarútgerða með veiðiheimildir,“ segir í yfirlýsingu Fonts og er vísað til þess að ráðherra hafi von um að meiri afli til strandveiða fáist í gegnum skipti ríkisins á aflaheimildum í öðrum tegundum fyrir þorsk við Íslandsstrendur.

Illa gekk að fá þorsk fyrir loðnu.

Enga samleið með vísindalegri nálgun

Telur Fontur að smábátaútgerða hafi spornað gegn samþjöppun aflaheimilda og komið í veg fyrir fjölbreyttur sjávarútvegur legðist af í hinum dreifðu byggðum.

„Strandveiðar yfir sumarið hafa tryggt útgerð hundruð smábáta sem landað hafa afla á tuga útgerðarstaða um land allt.  Þannig hafa hafnarmannvirki fengið endurnýjað hlutverk ásamt þjónustuaðilum. Síðast en ekki síst hafa strandveiðarnar gefið nýjum aðilum tækifæri á að hefja útgerð,“ fullyrða smábátaeigendur á Norðurlandi eystra í yfirlýsingunnni sem birt hefur verið á vef Landssambands smábátaeigenda.

„Veiðar smábáta á strandveiðum eru njörvaðar niður með alls konar takmörkunum. Það sem stjórnvöld ná þó ekki til er náttúran sjálf;  veður og fiskgengd á grunnslóð.  Að vitna í ofanálag til vísindalegrar ráðgjafar Hafrannsóknastofnunar er til að æra óstöðugan. Veiðar smábáta með handfærum þar sem aflinn sveiflast til og frá um 1% af leyfilegum heildarafla á enga samleið með vísindalegri nálgun,“ segir að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »