Skeljungur fyrstur með lífdíselblöndu fyrir skip

Skeljungur er fyrst olíufélaga til að bjóða lífdíselblöndu á skip …
Skeljungur er fyrst olíufélaga til að bjóða lífdíselblöndu á skip sem er talin mun umhverfisvænni valkostur en hefðbundin díselolía. Ljósmynd/Aðsend

Skeljungur getur nú tekið við forpöntunum á skipadísel með 10% lífdíselblöndu og er orðið fyrsta olíufélagið sem býður upp á þessa vöru. Fyrstu farmar eldsneytisins eru væntalegir á vormánuðum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Þar segir að ákveðið hafi verið að auka framboð af umhverfisvænni valkostum í vöruframboði félagins í samræmi við stefnu Skeljungs um að vera traustur félagi fyrirtækja í orkuskiptum, en í því skyni hefur félagið sett sér markmið um að stuðla að samdrætti í óbeinni losun gróðurhúsalofttegunda í virðiskeðju sinni.

„Félagið hefur því unnið að þróunarverkefni um lífdíselblandað skipadísel. Með því að nota skipadísel með lífdíselblöndu geta fyrirtæki í sjávarútvegi náð að draga töluvert úr kolefnislosun í sínum rekstri,“ segir í tilkynnignunni.

Raunhæfur valkostur

Lífdísel er framleitt úr endurnýjanlegum hráefnum eins og jurtaolíu og dýrafitu. Lífdísel er sjálfbærari valkostur en hefðbundið skipadísel sem unnið eru eingöngu úr jarðefnaeldsneyti. Fullyrt er að afköst og orkuinnihald er svipað og hefðbundið dísel. Er lífdísel því sagt raunhæfur valkostur til notkunar í díselknúnum vélum.

„Það hefur svipaðan þéttleika, seigju og orkuinnihald og dísel. Að auki hefur lífdísel hærri cetantölu en hefðbundið dísel, sem þýðir að það kviknar auðveldara og brennur á skilvirkari hátt, sem skilar sér í betri afköstum vélarinnar og sparneytni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »