Gengur vel að rétta Wilson af

Wilson skaw strandaði á Húnaflóa.
Wilson skaw strandaði á Húnaflóa. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Björgunaraðgerðir vegna flutningaskipsins Wilson Skaw eru í fullum gangi og ganga aðgerðir samkvæmt áætlun. Unnið er að því að minnka stafnhallann á skipinu til þess að Freyja geti komist upp að því og aðstoða megi við tilfærslu á farmi.

Björgunaráætlun vegna skipsins var samþykkt á fimmtudag. 

„Hún kveður á um að þegar þessu er lokið, það er að segja þegar er búið að rétta skipið af að þá fari Freyja utan á flutningaskipið og síðan verði unnið að því að færa farminn til til þess að það verði rétt burðarþol í skipinu, það er að segja að það sé rétt lestun á skipinu þegar að það verður á endanum dregið til Akureyrar þegar búið er að færa farminn til,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi landhelgisgæslunnar, í samtali við mbl.is

Freyja utan á Wilson í dag

Hann gerir ráð fyrir því að þessar aðgerðir muni taka einhverja daga en Freyja muni fara utan á Wilson í dag. Í kjölfarið verði þá hægt að vinna í færslunni á farminum.

„Það mun fara fram þannig að Freyja leggst utan á Wilson og það eru tveir kranar á hliðum Freyju sem eru færanlegir sem geta þá tekið þennan farm. Hluti farmsins þarf þá að fara um borð í Freyju, síðan aftur um borð í skipið og það þarf þá í rauninni að endurraða farminum samkvæmt þeim útreikningum sem gerðir hafa verið til þess að tryggja að það sé sem öruggast að flytja skipið til Akureyrar,“ segir Ásgeir.

Gert er ráð fyrir að þessu ljúki ekki fyrr en um miðja næstu viku en í kjölfarið megi hefja drátt á skipinu til Akureyrar.

Ásgeir segir aðgerðina hafa tekið mið af öryggi skipsins og umhverfisins. Varlega sé farið meðal annars til þess að það verði ekki umhverfisskaði. Aðgerðir sem þessar geti tekið tíma en þessi aðgerð sé þó á áætlun.

Norska flutningaskipið Wilson Skaw strandaði við Enn­is­höfða á Húna­flóa 18. apríl en losnaði svo af strandstað fyrir um viku síðan og var dregið á öruggari stað inn í Steingrímsfjörð. Um borð í skipinu eru tvö þúsund tonn af salti.

mbl.is
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.9.23 548,63 kr/kg
Þorskur, slægður 22.9.23 592,02 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.9.23 268,46 kr/kg
Ýsa, slægð 22.9.23 206,99 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.9.23 248,35 kr/kg
Ufsi, slægður 22.9.23 304,22 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.9.23 301,00 kr/kg
Gullkarfi 22.9.23 271,49 kr/kg
Litli karfi 21.9.23 13,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.9.23 Hrönn NS 50 Handfæri
Karfi 7 kg
Samtals 7 kg
23.9.23 Hlökk ST 66 Landbeitt lína
Ýsa 4.434 kg
Þorskur 2.200 kg
Karfi 4 kg
Samtals 6.638 kg
23.9.23 Natalia NS 90 Handfæri
Þorskur 17 kg
Samtals 17 kg
23.9.23 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 8.551 kg
Hlýri 87 kg
Karfi 37 kg
Keila 20 kg
Ýsa 15 kg
Grálúða 7 kg
Steinbítur 2 kg
Samtals 8.719 kg

Skoða allar landanir »

Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.9.23 548,63 kr/kg
Þorskur, slægður 22.9.23 592,02 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.9.23 268,46 kr/kg
Ýsa, slægð 22.9.23 206,99 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.9.23 248,35 kr/kg
Ufsi, slægður 22.9.23 304,22 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.9.23 301,00 kr/kg
Gullkarfi 22.9.23 271,49 kr/kg
Litli karfi 21.9.23 13,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.9.23 Hrönn NS 50 Handfæri
Karfi 7 kg
Samtals 7 kg
23.9.23 Hlökk ST 66 Landbeitt lína
Ýsa 4.434 kg
Þorskur 2.200 kg
Karfi 4 kg
Samtals 6.638 kg
23.9.23 Natalia NS 90 Handfæri
Þorskur 17 kg
Samtals 17 kg
23.9.23 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 8.551 kg
Hlýri 87 kg
Karfi 37 kg
Keila 20 kg
Ýsa 15 kg
Grálúða 7 kg
Steinbítur 2 kg
Samtals 8.719 kg

Skoða allar landanir »