Olíukaup í Færeyjum spara tugi milljóna

Landhelgisgæslan telur forsendur gagnrýni Ríkisendurskoðunar á olíukaup stofnunarinnar í Færeyjum …
Landhelgisgæslan telur forsendur gagnrýni Ríkisendurskoðunar á olíukaup stofnunarinnar í Færeyjum hafa verið aðrar þegar álitið var gefið út, nú sé umfang kaupanna meira. Ljósmynd/Landhelgisgæsla Íslands

Æfingar íslensku varðskipanna í Færeyjum hafa reynst Landhelgisgæslunni drjúgar og leitt til sparnaðar í olíukaupum sem nemur tugum milljóna, að því er segir í umfjöllun Morgunblaðsins.

Áhöfnin á varðskipinu Þór hélt sameiginlega æfingu með áhöfn varðskipsins Brimils við Þórshöfn í Færeyjum í síðustu viku. Æfingar sem þessar fara reglulega fram og eru nauðsynlegar fyrir starfsfólk Landhelgisgæslunnar sem fær mikilvægt tækifæri til að æfa með áhöfnum systurstofnana hennar, að sögn Ásgeirs Erlendssonar upplýsingafulltrúa.

Frá aldamótum hafa varðskip Landhelgisgæslunnar tekið olíu í Færeyjum þegar þau hafa verið við eftirlitsstörf djúpt austur af landinu eða við æfingar með dönsku og færeysku varðskipunum. Ríkisendurskoðun komst að þeirri niðurstöðu fyrir tveimur árum, í stjórnsýsluúttekt á Landhelgisgæslu Íslands, að stofnunin ætti að hætta olíutöku í Færeyjum og beina þess í stað viðskiptunum til Íslands.

Þegar litið sé til þeirra fjármuna sem Landhelgisgæslan fær til reksturs stofnunarinnar og heildarhagsmuna ríkisins sé varla hægt að líta á það sem svo að um raunverulegan sparnað sé að ræða. Sá virðisaukaskattur, sem stjórnendur Landhelgisgæslunnar vísi til að skeri úr um hvar borgi sig að kaupa eldsneyti, renni allur til ríkissjóðs.

Ásgeir segir að síðan álit Ríkisendurskoðunar var sett fram hafi forsendur breyst og rekstur Landhelgisgæslunnar orðið mun þyngri. Þar vegi stórhækkaður olíukostnaður þungt. Hið nýja varðskip Freyja eyðir mun meira eldsneyti en Týr, sem Freyja leysti af hólmi, enda fjórfalt stærra skip.

Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »