Landsvirkjun þarf að takmarka afhendingu á orku

Landsvirkjun.
Landsvirkjun. Ljósmynd/Landsvirkjun

Landsvirkjun þarf að grípa til takmörkunar á víkandi orku til fiskimjölsverksmiðja, fiskþurrkana og gagnavera sem stunda rafmyntagröft. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun. 

Ástæða aðgerðanna, sem eru ótímabundnar, er samspil erfiðs vatnsbúskapar, hárrar nýtingar stórnotenda á langtímasamningum og aukinnar eftirspurnar heimila og smærri fyrirtækja, sem Landsvirkjun kappkostar að tryggja orku.

Í tilkynningunni segir að spurn eftir raforku á Íslandi hafi verið mikil á undanförnum misserum. Þar hafi farið saman eftirspurn stórnotenda á sama tíma og eftirspurn heimila og smærri fyrirtækja hafi aukist. 

„Þegar eftirspurn er mikil er raforkukerfið viðkvæmara fyrir stöðunni í vatnsbúskapnum og líklegra að grípa þurfi til skerðinga, eins og fyrri dæmi sanna. Viðskiptavinir á borð við fiskimjölsframleiðendur og gagnaver í rafmyntagreftri sem ekki hafa gert samninga um kaup á forgangsorku verða fyrir áhrifum þegar vatnafar gefur eftir og afhending til þeirra takmörkuð í samræmi við ákvæði samninga,“ segir í tilkynningunni.

Þórisvatn fylltist ekki

Þar segir einnig að tíðafar á Þjórsársvæðinu hafi verið mjög þurrt frá byrjun júlímánaðar. Það hafi ollið því að Þórisvatn fylltist ekki í haust og niðurdráttur hófst snemma á svæðinu, eða upp úr miðjum september. 

Önnur miðlunarlón Landsvirkjunar fylltust í sumar og Blöndulón og Hálslón fóru af yfirfalli í lok september. Fylling miðlunarforða í upphafi vatnsárs, sem byrjar 1. október, var 93%. Það samsvarar því að um 350 GWh hafi vantað í forðann í upphafi vetrar.

Fyrir utan eina haustlægð um miðjan október hafa þessir þurrkar haldið áfram á hálendinu. Niðurdráttur miðlunarlóna hefur verið mjög eindreginn og þróunin á Þjórsársvæði sambærileg þróuninni haustið 2021, sem þá reyndist viðvarandi.

Varir líklega fram á vor

„Ljóst er að takmarka þarf afhendingu á víkjandi orku svo tryggja megi öryggi afhendingu í vetur til þeirra viðskiptavina sem samið hafa um slíkt. Afhending á víkjandi orku verður stöðvuð frá og með næsta föstudegi, 1. desember. Sú stöðvun verður í gildi þar til miðlunarstaða hefur batnað.

Reynslan sýnir að óverulegar breytingar verða á innrennsli yfir kaldasta tíma ársins, svo búast má við að skerðingin standi fram á vormánuði. Á meðan hún er í gildi býður Landsvirkjun ekki upp á gerð neinna nýrra samninga um afhendingu forgangsorku til stórnotenda á árinu 2024“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »