Gera alþjóðasiglingar umhverfisvænni

Lagt verður upp með að breyta ítalska skipinu þannig að …
Lagt verður upp með að breyta ítalska skipinu þannig að það noti að hluta til rafeldsneyti í stað jarðefnaeldsneytis. Ljósmynd/Aðsend

Verkís leiðir 2,5 milljarða orkuskiptaverkefni um rafeldsneyti í sjóflutningum. Markmiðið er að gera sjóflutninga umhverfisvænni með því að þróa tæknilausnir og breyta ítölsku flutningaskipi þannig að það gangi fyrir rafeldsneyti í stað jarðefnaeldsneytis. 

Verkís sér jafnframt um lagnahönnun fyrir rafeldsneytið, eldvarnir, brunaöryggi og áhættustjórnun, auk þess að eiga þátt í hönnunarstjórnun, hönnun eldsneytiskerfis og lífsferilsgreiningu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Verkís. 

Nýsköpunarverkefni 

Verkefnið er nýsköpunarverkefni og ber heitið GAMMA (Green Ammonia and Biometanol fuel MARitime Vessels). Það er styrkt af Evrópusambandinu og unnið í samstarfi við fjölda fyrirtækja um alla Evrópu. 

„Í verkefninu er unnið að því að þróa og prófa nýsköpunarlausnir í orkuskiptum með endurbótum á flutningaskipi í rekstri (e. retrofit) og koma svo lausnunum á markað,“ er haft eftir Kjartani Due Nielsen, nýsköpunarstjóri hjá verkfræðistofunni Verkís, í tilkynningunni. 

Á endanum verða full orkuskipti 

„Fyrir hönd alls hópsins og samstarfsaðila get ég sagt að við erum afar stolt og þakklát því að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur valið að styðja við þetta verkefni að gera alþjóðlegar siglingar umhverfisvænni.

Við munum setja nýjan tækjabúnað um borð í flutningaskip og prófa meðan skipið er í flutningum á milli landa og sanna að hægt sé að nota eldsneytiskerfi sem gengur fyrir rafeldsneyti í stað þess að nota jarðefnaeldsneyti á varaaflvél skipsins. Ef það gengur eftir væri næsta skref að skipta um aðalvél skipsins fyrir full orkuskipti. Verkefnið er mjög framsækið og getur gjörbylt orkuskiptum á sjó,“ er jafnframt haft eftir Kjartani.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »