„Alvöru kjarasamningar eftir erfiða fæðingu“

Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands.
Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kjarasamningur sjómanna, sem var undirritaður 6. febrúar, hefur verið samþykktur. 62,84% prósent félagsmanna greiddu atkvæði með samningnum en 37,17% voru á móti. Kjörsóknin var 53,6%.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjómannasambandi Íslands en þar segir að það sé alltaf ánægjulegt þegar kjarasamningur er samþykktur og sérstaklega núna eftir allt það skítkast og óhróður sem beindist að forystumönnum Sjómannasambandsins.

Bættum og lagfærðum það sem sjómenn gagnrýndu mest

„Núna eru sjómenn innan SSÍ komnir með alvöru kjarasamning eftir erfiða fæðingu. Sá samningur sem felldur var fyrir ári síðan er grunnurinn að þessum nýja samningi. Við bættum við og lagfærðum það sem sjómenn gagnrýndu hvað mest í þeim samningi. Ég er stoltur af mínum félagsmönnum innan Sjómannasambandsins að samþykkja samninginn,“ segir Valmundur Valmundarson, formaður Sjómannasambands Íslands.

„Loksins er gert upp úr 100% aflaverðmæti. Loksins geta sjómenn sagt að þeirra hlutur í olíukostnaði sé í burtu. Nú geta sjómenn sótt hækkun beint á skiptaprósentu ef þurfa þykir með grein 1.39.1. Loksins koma hækkanir á kauptryggingu og kaupliðum eins og gerist á almenna markaðnum. Loksins fá sjómenn desember uppbót árið 2028,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »