„Báturinn fór á hliðina hérna í innsiglingunni. Það var slagsíða á honum og þá sneru þeir við og svo gerðist þetta bara,“ segir Albert Eggertsson, einn eigenda útgerðarinnar Gamvik Seafood í sveitarfélaginu Gamvik í norska fylkinu Finnmörk, en Gamvik er eitt af nyrstu byggðu bólum á meginlandi Evrópu.
Það var fimmtán metra bátur í eigu útgerðarinnar, Aldís Lind, sem lagðist á hliðina í fyrrakvöld og segir Albert fjögurra manna áhöfn hafa verið um borð, þar af einn Íslending. „Það er bátur á leiðinni hingað núna sem verður kominn um þrjúleytið og fer þá í að reisa hann við, hann liggur bara þarna í flæðarmálinu,“ segir Albert en að hans sögn er ekkert vitað um það enn sem komið er hvað olli því að slagsíða kom á Aldísi Lind sem svo fór á hliðina.
„Maður er ekkert að pæla í því“
Annar bátur hafi verið við bryggju og áhöfn hans verið að gera klárt fyrir að leggja í haf. Sá hafi siglt til móts við Aldísi Lind og segist Albert vita að einn úr áhöfn Aldísar hafi stokkið yfir í hinn bátinn en að minnsta kosti einn hinna þriggja farið í sjóinn.
„Ég held að hinir hafi komist því sem næst þurrum fótum í land,“ segir Albert og kveðst ekkert vita um tjón enn sem komið er. „Maður er ekkert að pæla í því, strákarnir sluppu heilir í land og svo er hitt bara eitthvað sem fer í ferli,“ segir hann.
Gamvik Seafood á annan bát sem Aldís Lind var keypt til að leysa af hólmi, „en hvort við setjum hann af stað, það er náttúrulega búið að draga saman þorskkvótann og það allt saman og við erum ekkert farin að hugsa út í það einu sinni“ segir Albert Eggertsson hjá Gamvik Seafood að lokum.