Átakanlegt að upplifa svona slys

Þorkell Pétursson, skipstjóri á Barða NK.
Þorkell Pétursson, skipstjóri á Barða NK. Ljósmynd/Smári Geirsson

Skipverjar á Barða NK, sem tóku þátt í leitinni að skpverjum af færeyska línuskipinu Kambi, fundu tvö björgunarvesti og einn flothring á floti í sjónum nærri staðnum þar sem skipið sökk fljótlega áður en þeir fengu tilkynningu um að leitinni væri frestað fram í birtingu. 

Frá þessu segir Þorkel Pétursson, skipstjóri á Barða, á vef Síldarvinnslunnar

Umrædd leit var að tveimur sjómönnum sem saknað var eftir að línuskipið Kambur sökk suður af Suðurey í Færeyjum. Leitinni hefur formlega verið hætt og eru sjómennirnir taldir af. 

Snarvitlaust veður um morguninn 

Það var að morgni þriðjudagsins 7. febrúar sem færeyska línuskipið Kambur fékk á sig brotsjó suður af Suðurey í Færeyjum og lagðist á hliðina. Á skipinu var 16 manna áhöfn og komust 14 úr áhöfninni upp á skipið þar sem það flaut á hliðinni og var þeim bjargað um borð í þyrlu og fluttir til lands.

Tveggja úr áhöfninni var saknað og hófst fljótlega leit að þeim. Barði var á kolmunnaveiðum í færeyskri lögsögu þegar slysið átti sér stað og voru þeir beðnir um að taka þátt í leitinni. 

Þorkell lýsir aðkomu Barða að leitinni á vef Síldarvinnslunnar. Segir hann veðrið hafa verið snarvitlaust um morguninn og telur hann að ölduhæðin hafi verið einir sex metrar, en þeir voru að toga við landgrunnskantinn suðvestur af Færeyjum. 

Fiskiskipið Kambur.
Fiskiskipið Kambur.

Þyrlan gat ekki tekið alla um borð 

Það var síðan um klukkan tvö eftir hádegi sem símtal berst frá færeysku landhelgisgæslunni sem greinir þeim frá slysinu og óskar eftir því að Barði taki þátt í leitinni að sjómönnunum af Kambi. 

Fengu þeir m.a. upplýsingar um að búið væri að bjarga 14 úr áhöfninni og að þyrlan hefði flutt þá til lands. Hins vegar hefði þyrlan einungis geta tekið 13 menn um borð þannig að einn þurfti að hýrast á skipinu á meðan þyrlan fór í land og kom síðan aftur að sækja hann segir Þorkell. 

„Það hlýtur að hafa verið ömurleg vist fyrir manninn,“ segir í frásögn Þorkels.

Tvö íslensk skip við leitina

Þorkell segir áhöfnina á Barða hafa farið í að hífa um leið og landhelgisgæslan hringdi og síðan haldið af stað á leitarsvæðið, þangað sem þeir voru komnir eftir um einn og hálfan klukkutíma. Þegar þangað var komið segir hann að veðrið hafi eiginlega verið gengið niður. 

Hoffell SU, annað íslenskt skip, var að toga skammt frá Barða og fengu þeir sömu beiðni frá landhelgisgæslunni í Færeyjum. Þorkell segir Hoffell hafa gert það sama og Barða, híft strax og haldið af stað til leitar. 

Fundu björgunarvesti og björgunarhring 

Leitað var að mönnunum tveimur bæði á sjó og úr lofti. Þorkell segir frá því að Barði hafi komið á leitarsvæðið í björtu en að fljótlega hafi skollið á niðamyrkur. Á Barða eru þó þrír öflugir kastarar og komu þeir sér vel við leitina í myrkrinu, segir hann. 

„Þegar við vorum búnir að leita um tíma fengum við skilaboð frá breskri leitarflugvél um að athuga eitthvað sem þeir höfðu séð á floti í sjónum á tilteknum stað í grennd við okkur. Við héldum þegar þangað og þarna fundum við tvö björgunarvesti og einn bjarghring á floti. Þessa hluti tókum við um borð,“ er haft eftir Þorkatli. 

Hann segir Barða hafa haldið leitinni áfram eftir fundinn og fundið töluvert af braki í sjónum.

Hins vegar hafi þeir fljótlega fengið tilkynningu um að leitinni væri frestað fram í birtingu og segir Þorkell að þar með hafi þátttöku þeirra í leitinni lokið. 

Leitin hafði djúp áhrif á áhöfnina

Leitinni var þó haldið áfram fram að laugardag en án árangurs. Þorkell segir ávallt átakanlegt að upplifa slys eins og þetta. Menn hafi verið daprir og áhyggjufullir en einbeitt sér að leitinni eins og frekast var kostur. 

„Allir í áhöfninni voru virkir við leitina og vonuðu heitt og innilega að hún bæri árangur. Fyrir okkur er einfalt að setja okkur í spor færeyskra starfsbræðra og finna til með þeim og fjölskyldum þeirra. Þessi atburður hafði djúp áhrif á alla í áhöfninni á Barða.“ 

Þegar veiðum lauk hjá Barða segir Þorkell að áhöfnin hafi komið við í Þórshöfn og afhent landhelgisgæslunni þá hluti sem þeir fiskuðu upp úr sjónum við leitina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »