„Allir um borð eru afskaplega hjálplegir“

Rakel Guðmundsdóttir, Agnes Eydal, Ingibjörn Hafsteinsson, Aron Örn Birkisson, Ingibjörg …
Rakel Guðmundsdóttir, Agnes Eydal, Ingibjörn Hafsteinsson, Aron Örn Birkisson, Ingibjörg G. Jónsdóttir, Axel Hilmarsson og Helgi Ágústsson í síðasta leiðangri. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Vísindamenn Hafrannsóknastofnunar sneru nýlega til baka úr fertugasta marsralli stofnunarinnar en þetta viðamikla árlega rannsóknarverkefni er ein af mikilvægustu vísindalegum stoðum fiskveiðiráðgjafar Hafró og tekur allt að þrjár vikur.

Ingibjörg G. Jónsdóttir, fiskavistfræðingur og verkefnisstjóri stofnmælingar botnfiska á Íslandsmiðum, veitti lesendum nýjasta blaðs 200 mílna innsýn í verkefnið. Hún segir mælinguna alltaf fara fram með sama hætti: „Í ár tóku fjögur skip þátt og gerðu mælingar á 580 stöðvum hringinn í kringum landið en veitt var allt niður á 500 metra dýpi,“ útskýrir hún en marsrallið leggur megináherslu á að mæla stofnstærð botnfisktegunda.

Gæta þarf mikillar nákvæmni við veiðar og mælingu og einnig er brýnt að hafa sem mest samræmi í vinnubrögðum á milli ára og hefur t.d. verið notast við sömu gerð veiðarfæra frá upphafi. Niðurstöðurnar gefa góða vísbendingu um ástand nytjastofnanna og eru notaðar sem grundvöllur ráðgjafar Hafrannsóknastofnunar til stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar.

Leiðangursfólk fyrir framan Breka VE í bolum sem voru útbúnir …
Leiðangursfólk fyrir framan Breka VE í bolum sem voru útbúnir sérstaklega í tilefni af því að 40 ár eru liðin frá fyrsta marsrallinu. Vísindamenn og sjómenn snúa bökum saman meðan á rannsókninni stendur. Svanhildur Egilsdottir
Það er nákvæmnisvinna að mæla stærð nytjastofnanna og þarf að …
Það er nákvæmnisvinna að mæla stærð nytjastofnanna og þarf að reyna að tryggja fullkomið samræmi í því hvar, hvenær og hvernig veiðarnar fara fram. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

„Við notum vörpu með minni möskvastærð í poka en gengur og gerist í veiðum því við höfum einnig áhuga á að skoða ástand ungviðis,“ segir Ingibjörg en fiskifræðingar Hafró hönnuðu stöðvanetið sem notast er við í samvinnu við sjómenn og voru stöðvarnar valdar bæði til að fá góða mynd af ástandi helstu nytjastofna og einnig til að greina hvar mörk dreifingar einstakra stofna liggja.

„Aflinn er mjög mismunandi eftir svæðum og fyrir okkur skiptir það ekki síður máli að gera mælingar á stöðum þar sem alla jafna er lítið af fiski svo við fáum betri mynd af útbreiðslu stofnanna, og fyrir vikið erum við einnig að taka tog á slóðum þar sem sjómenn eru ekkert endilega að sækja.“

Viðtalið við Ingibjörgu má lesa í heild sinni í síðasta blaði 200 mílna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »