„Við lentum í bölvuðu brasi“

Veður var ekkert spennandi undir lok síðasta túr Gullvers NS …
Veður var ekkert spennandi undir lok síðasta túr Gullvers NS sem landaði 72 tonnum í Hafnarfirði í gær. Ljósmynd/Síldarvinnslan: Þorgeir Baldursson

Gullver NS landaði 72 tonnum í Hafnarfirði í gærmorgun eftir misgóða veiðiferð og var aflinn mest karfi og þorskur. Skipið hélt á miðin á ný að lokinni löndun í gær.

„Við byrjuðum á að taka karfa út af Melsekk en þangað var eins og hálfs sólarhrings sigling frá Seyðisfirði. Það gekk vel að ná karfanum þarna. Við færðum okkur síðan á Eldeyjarbankann en borist höfðu góðar veiðifréttir þaðan. Þegar þangað var komið hafði veiðin hins vegar dottið niður,“ segir Þórhallur Jónsson skipstjóri um túrinn í færslu á vef Síldarvinnslunnar.

„Þá færðum við okkur norður undir Látragrunn en þaðan höfðu einnig borist góðar fréttir. Þetta var sama sagan því veiðin var dottin niður þar líka þegar við komum. Að þessu loknu héldum við á ný á Eldeyjarbankann og vorum þar það sem eftir var túrsins. Undir lokin var veðrið ákaflega leiðinlegt. Það voru yfir 25 metrar síðasta einn og hálfan sólarhringinn og við lentum í bölvuðu brasi, festum illa og slitum grandara. Það gengur ekki alltaf allt að óskum í þessum bransa en það gengur bara betur næst,” segir Þórhallur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »